Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Cruxton
Cruxton Notandi frá fornöld 44 ára karlmaður
2.388 stig
“True words are never spoken”

Djásnið (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ormétið líkið vaknar af djúpum svefni getur sig hvergi hreyft í kirkjunnar kistu byrjar að kalla ryðgaðri röddu á djásnið fagra gelgjur í unglingavinnunni hlusta á vasadiskó blása bleikar tyggjókúlur og yppa öxlum gimsteinninn hugsar til mín fölum útgrátnum augum liggur ein og yfirgefin á satínrúminu okkar vaknar snöggt frá ósvöruðum spurningum um leið og banamaður minn bankar og sýnist dapur ég byrja að öskra og berja á kistuna af öllu afli kvalarinn tekur eina skartgrip minn í sína arma...

Gefum börnunum brauð (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Glær gríma þín grætur þurrum tárum gnísta frostbitnar tennurnar fast ég skil þetta allt betur á efri árum rétti þér ekki hjálparhönd þegar þú dast mannvonskan var ekki alltaf svona í eina tíð þótti ég góður maður þar til í líf mitt kom fögur kona fáguð orð mín breyttust í þvaður staddur er í banka og á afríkubauk lít jólaleg samúðin umlykur strætinn rauð með fátæklegum augunum á þetta ég skít veld óró er ég í baukinn treð heimasmurt brauð

Himnaríki (5 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Á hækjum sit og hugsa mikið um blómlega líflega fyrrum daga við altarið stóð en þá kom hikið lauk í fæðingu sú rómantíska saga sífullur ligg hér í eigin ælu ókunnugt fólkið hrækir vinalega á mig nálgast óðfluga hina himneska sælu þegar á himni ég fæ að finna þig loks stend ég umkringdur vinalegum englum æstur yfirheyri þá um þinn samastað þeir leiða mig í fagurt ríki af horrenglum ég gefst upp og fer með þeim í bað

Djamm (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þrumandi stálhörð tónlistin glymur taktföst íslands björtustu vonir vínvökvinn sviptir næfurþunnri feimnisgrímunni óbeisluð kynorkan tekur öll völd þau hittast í miðjum regnskóginum upphefst taumlaus æðisgenginn dans þar sem allar bældar og faldnar hvatir lifna lostinn skýn í tindrandi nýlega lifnuðum augunum hjarta mitt rignir eldingum þegar ég fæ þig snert öll hin dýrin hverfa á vit móðunnar miklu bátur Nóa liggur sokkinn á hafsbotni og öll hin dýrin með eftir fljótum við sem eitt í hlýjum...

Slökkviliðsmaður (2 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Sótugar lúkurnar lyfta exinni hátt á loft hann hleypur hiklaust inn í logandi eldtungurnar lyktin af sviðnu hári færist að vitum hans hugurinn einbeittur og hræðslan óþekkt fyrirbæri ég var bara lítill snáði umvafinn glóandi logum sem brenndu mitt mjúka hörund inn að beini hrjúft andlit mitt ber enn í dag vott um þennan atburð grét af sárum kvölum og kreisti uppáhalds bangsann úr miðju eldhafinu birtist hann eins og engill vonin og lífsviljinn tóku mig á loft báru mig á karlmannlegu...

Fæðing (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég ráfa ein um lífslaust og regnvott strætið í skipulagðri leit að hinu eina sanna fjósi sem geymir þína himneska jötu Maríu og Jóseps kaldur og ófrískur líkaminn kemst ekki lengra maginn herpist skyndilega svo sárt að ég hníg máttlaus niður eyði síðustu kröftum mínum á tóma lestarstöðina sveitt og ringluð sé skilningsríka vitringana vísa mér leið sest á langþráðu postulínsjötuna og læsi heiminn frá mér ýti af öllum kröftum þessu nýja lífi inn í blautan himingeiminn skrerandi gráturinn...

Sjómennska (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Glitrandi hafið og aldan dökkblá og köld í flýt hér í þéttum hópi góðhjartaðra manna sjávarguðinn ræður ríkum og hefur öll völd með sigurvilja í brjósti og glimur milli tanna speglast himinn svo albjartur og fagurrauður þeir sem fórust hér í nótt skaltu ávallt minnast því þeirra sterkbyggðu axlir létu aldrei bugast í kvöld gáfu þeir kalda líkama sína til hafsins en baráttuandinn og viljinn til að lifa dó aldrei náttúran nær okkur víst öllum að lokum

Ástríðuglæpur (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Skerandi öskrin í kring koma hægt í fókus ég lít á blóðugan hnífinn og tíminn stöðvast stend yfir kólnandi líki óþekkt manns sem reyndi að ráðast á veruna sem ég elska eitthvað gamalt og óþekkt eðli kviknaði snöggt en yndislega veran öskrar eins og óður köttur kvæsir og klórar mig til blóðs þegar ég nálgast ég sé núna logandi óttann í dimmbjörtum augum þínum innri ró færist loks yfir mig og ég finn að þú skilur innst inni þú veist við vitum bæði að hann gerði fólskulega atlögu að tindrandi...

Sérsveitarmaðurinn (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Geng eins og sérsveitarmaður í nýföllnum snjónum skima í allar áttir og byrja ósjálfrátt að læðast víglínan birtist við mörk skólalóðarinnar sprengjuregnið í krakkahlátri ómar í fjarska í þessu stríði fá stelpur líka að berjast vígvöllurinn er blóðugur og særðir liggja í víð og dreif hjartað slær hraðar og vöðvarnir stífna ósjálfrátt mig langar að hlaupa en eldtraust skynsemin stoppar mig ég hef gengið í gildru! óvinurinn byrjar að skjóta miskunarlaust og kalla í talstöðina “þarna er hann”...

Náttúrubarn (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Krýpur stjarfur af ótta í köldum klefanum orðinn einn af afgöngum kerfisins stanslaust hvísl fíkninnar er nú orðið að skerandi öskri suðandi loftstokkurinn syngur gamlri röddu ég er hræddur vill bara fá mömmu kafa andlitinu í heitt og skilningríkt brjóstið aldrei aldrei sleppa ég játa dáleiddur einsog í djúpri leiðslu alla glæpi og misverknaði mannkynsins stari handjárnaður á fallegt sofandi barn í umferðinni fæ óþægilegan sting í annars vel múrað hjartað stari á jökulkallt augnarráð...

Ég og þú (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þessi augu horfa eins og straumþung á sem ísi hefur laggt og enginn þorir á skauta horfir á kvalara sinn skilningsríkum augum þetta varst ekki þú heldur einhver ófreskja í álögum en ófreskjan breytist ekki í prins þrátt fyrir endalausa kossa og blíðu einhverjir menn verða vondir að vera til að ljósið sjáist í þér og mé

Tíminn er peningar (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Svitna einsog rómversk svín í verðbréfastíunni og húsbréfailminum krónan er að falla selja! selja! helvítis, maður orðinn of seinn á deit já finnst þér gaman að vinna með börnum? hmm já… heyrðu ég er að flýta mér dálítið viltu koma núna heim að ríða eða? ha, nei ég borga kaffið wam bam thank you mam Heyrðu, ég þarf að flýta mér einhvert við þyrftum að hittast aftur fljótlega til að spjalla og svona hvað heitiru annars?

Íslands fögru dætur (0 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þeir sem eru springa úr heilbrigði fylla líkamsræktarstöðvar feitir halda áfram að troða í sig fitugan skyndibitann ung falleg hjörtu laðast af ómerkilegum skíthælum sem vilja aðeins neyta þeirra eins og ósnortinn ávöxt kresta lífsafann úr þeim ferskum en henda tilfinninga berkinum Börnin skríða upp úr sandkassanum uppí partý hinna eldri þar sem blóð þeirra fyllist af slævandi efnaflóru ranka við sér liggjandi svalandi grimmum lostum ófreskjanna í myrkrinu sem bíða í röð meðan þeir urra og...

Hössl (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Margir eru að safna og flestir vilja eiga sem flest og best fyrir sína að sjá þetta gat ég en ekki þú! þær láta mig ekki í friði, viltu pæla? Hann þótti góður á sínum yngri árum leit á þetta eins og hvert annað sport ef þett' væri ólympíuíþrótt kæmist ég á pall myndi sigra heiminn fyrir land mitt og þjóð Nú situr hann með sín gömlu veiðiaugu kemur skyndilega auga á of unga vínveika bráð hellir í hana eitri þar til líkaminn gefst upp heldur á máttlausum líkamanum út í vetrarnóttina...

Töffari (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Glaðir ganga svalir úr gallerí sautján með ljóshærðar smásálir í eftirdragi hugfallnar hlæga að öllu sumt á ekki að vera fyndið en þær hlægja samt óöryggi þeirra skýn í gegn meðan þeir glotta sín á milli Á mæðurnar þær öskra og feðurna þegja dauðaþögn horfa í kvöldmatnum á litla ljósglætuna sína dvína í átt að almyrkva þegar árin færast yfir móðirin bíður stressuð eftir að sálin litla blæði út faðirinn þarf að horfa á þá notfæra tilgang lífs síns Glaðir ganga svalir eftir göngum skólans soga...

Skurðaðgerð (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Liðna nótt opnaði ég stálhart brjóst mitt opnaði ótal lása og rykfallnar hirslur flestir voru stífir höfðu greinilega aldrei fyrr verið opnaðir loks fann ég það umvafið barnslegri einlægni lagði loks mjúkt sláandi hjartað ofurvarlega í fíngerða lófa þína leyfði þér að fá lánað Veit ekki hvenær þú skilar því… en eftir standa hin fyrstu fingraför sem engin nær að afmá hvorki í þessu lífi né því næsta

Verum "vinir" ?!? (46 álit)

í Rómantík fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég er búinn að vera að hitta eina yndislega stelpu undanfarið en ákvað að ljúka því í gær. Hún er bæði skemmtileg,gáfuð og falleg. Reyndar bara 17ára en samt með miklu meiri reynslu en ég því hún hefur verið í 3samböndum en ég engu. Á fyrsta deiti kom mér svo óvart hvað ég gat verið opinn við hana því venjulega þori ég aldrei að tala við ókunnuga frá hjartanu. Síðan fórum við heim og spiluðum á píanóið! (erum bæði nokkuð góð) Sungum meira að segja saman “A whole new world” og það var bara...

Lífshlaup (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hleyp lengra út í þessa kolsvarta vetrarnótt til að hreinsa ringlaðan hug minn og hjarta lungun stinga og bræðrablóðið brennur sköpunargáfan geislar nýfædd svo lifandi björt sorgin skapar nýjar víddir stórra hugsana hann kreppir hnefann og vonar svo heitt að þessi ást úr fjarska gefi honum sprengikraft svo hann verði hvorki gleymdur né grafinn líkt og forfeður sínir sem enginn man en ísilögð náttúran er róleg og brosir blítt hún hefur séð þetta svo ótal oft örvinglaða unga menn sem ætla að...

Blóm (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég sé lítið fallegt blóm í haga grasið og engið horfir á móti stóreygt með djúpum fagurgrænum bjarma geng að því og stari lengi hugfallinn tými ekki að slíta það frá jörðu því þá mun það fölna brátt og síðan deyja bakka og horfi yfir spegilslétt engið og sé skyndilega öll hin öðruvísi blómin sem vilja vera týnd áður en veturinn kemur Cruxton

Ástarjátning (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Unga bros þitt skín svo bjart speglast eins og gull við morgunroða í gær dreymdi mig um að snerta þig þitt mjúka hörund en núna er nóg að horfa á þig bara svona Hlustandi á þær heppnu sálir er fengu að njóta dýrðarlíkama þíns kveikir nýtt bál í útkulnuðu hjarta þeir fengu kanski líkama þinn verði þeim að góðu því ég á hug þinn allan Cruxton

Barn (4 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég gleymi aldrei þessa saklausa brosi þegar þessir fyrstu tónar hljómuðu vært horfðu á mig fagurt með tindrandi augum vildi mér eitthvað segja en tíminn var búinn það sturtaðist niður og allar áhyggjur með Cruxton

Einu fíflinu færra (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hví kvelur þú mig stanslaust svo endalaust mikið og hlærð um leið með þínu saklausa daðri sérðu ekki á vöngum mínum uppþornuðu tár eða uppgjafa og máttlaust hjartað af sorg Ég hef einu sinni tjáð þér mína endalausu ást en þú sussaðir bara á mig eins og lítinn krakka og reyndir ekki að taka eftir mínum tómum augum er þú lýstir einum af þínum mörgum rekkju vinum Nú hef ég loks bundið enda á mínar kvalir kaldur líkaminn einkennist af innri friði sjórinn skolaði mér aftur til mannabyggða þú...

Ógagnhvæm ást (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þú hefur einokað heilabú mitt allar nætur síðan við hittumst mín fögurstu ástarorð ég skrifaði í sandinn því það tíðkast víst ekki í dag sem svar á móti köldum stafrænum kveðjum Nú vilt þú mig setja upp á vinastall ég get ekki hvartað ef ég fæ þig að heyra og sjá en mundu að ef einhver vill þig ekki þá veistu hvar þú getur náð mig í á sorgar stallinum við hliðina á þér Cruxton

Rapp ljóð (3 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég hamast við að lesa allar kynlífsbækur en samt vill kvenfólkið mig ekki í sína rekkju ég lifi ekki flott og verð að selja rækjur til að safna fyrir ýkt flottri gellu snekkju Á skemmtistöðum ég dilla mér við druslulegar skækjur þar til ofvaxin górilla reisir mig á fætur og gónir á mig og vill minn líkama berja ég reyni að halda stollti þar hann haus minn fer að merja Ein skemmtistaðarskækjan sér aumur á mér og tekur mig heim til að sár mín sleikja ræðst á mig spólgröð þar til lim minn sér...

Fátækt (1 álit)

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég stari með titrandi vonskusvip framan í fólk sem ég mæti á fjölförnum vegi það það er því að kenna að ég er svangur og kaldur og ekki hef fallegt konuhjarta unnið Hvernig dirfist það að horfa á minn tættann fatnað sem var þó ekki saumaður af börnum í þrælkun í fjarlægu landi heldur á dánarbeði aldraðrar móður minnar sem ég aldrei heyrði kvarta yfir nokkrum hlut Ég fæ snögglega útrás fyrir fátæklegum örlögum hennar og gref kalda hnúa mína í fallegan og mettan kvið jakkafatamanns sem horfði...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok