Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

zett
zett Notandi frá fornöld 42 ára kvenmaður
100 stig
Þú ert ekki orðin drukkin ef þú getur legið á gólfinu án þess að halda þér í ;)

Re: Geðsýkin í kringum Harry Potter

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Börnin hljóta nú líklegast ekkert meiri skaða af þessu heldur en af öðrum fáránlega markaðsettum fyrirbærum sem fara útí öfgar. (hver lét t.d. pokemon æðið hjá krökkum ekki fara smávegis í taugarnar á sér) og líklegast verð ég að viðurkenna að ég hef ekki mikla trú á því að svona æði hafi mjög slæm áhrifa á börn sem hafa hlotið gott uppeldi og stuðning frá foreldrum :P en þetta gerir allavega ekki neinum neitt gott, við hljótum að geta verið sammála um það… :) En já, ég skal taka undir með...

Re: Það sem allir ættu að gera en gera ekki

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er sammála því að það mætti alveg bæta aga fólks og þá væri líklega auðveldast að byrja á skólunum… eða hvað… Þegar aga er beitt í skólum eru alltaf einhverjir foreldrar sem kvarta og kveina fyrir hönd barna sinni. (jafnvel þótt börnunum líði ekkert illa) það má ekki lengur segja neitt við börnin eða kenna þeim neitt þá er einhver sem hringir í skólayfirvöld og vælir… auðvitað á það væl oft rétt á sér en stundum held ég líka að foreldrar ættu að spyrja sjálfa sig hvort barninu líði í...

Re: Gera huga.is að skemmtilegum leik?

í Tölvuleikir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Er fólk alveg hætt að geta talað saman á málefnalegu nótunum þegar það er ósátt við það sem aðrir eru að segja??? ER ekki bara einfaldara, mannlegra og ekki eins ópersónulegt að segja bara viðkomandi að þú hafir ekki verið sáttur við það sem hann sagði, þér finndist það barnalegt og algerlega óþarfi að láta svona og reyna að sættast á eðlilegan hátt… Finnst þetta eitthvað svo mikið tilraun til að búa til skriffinnsku… svona eins og þegar skólar láta mann fylla út eyðublað til að segja sig úr...

Re: Ást eða vani?

í Rómantík fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Það er auðvitað ekki hægt að líkja ást á fjölskyldumeðlimum og því að vera ástfanginn saman… Hins vegar hef ég soldið pælt í því með þessa ást á fjölskyldu meðlimum… þegar kemur að þeim sem koma illa fram við mann og maður “hatar” þótt maður elski þá… elskum við þá í alvörunni eða elskum við þá bara vegna þess að við ÞURFUM að elska þá… ? Ég er ekki að segja að við yrðum ekki leið ef eitthvað kæmi fyrir og allt það en neyðumst við ekki oft til að elska þá sem okkur langar helst ekki að elska...

Re: Hlustið á það sem þið viljið hlusta á!!!

í Músík almennt fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Vá, ég er alveg sammála þessari grein… ég fer ekki mikið í felur með minn tónlistarsmekk þótt ég viti að hann passar á mörgum sviðum alls ekki saman, en ég stend stundum sjálfa mig að því að hálf roðna þegar ég viðurkenni það að fíla suma hluti sem enginn gerir ráð fyrir því að ég fíli… sem er auðvitað fáránlegt því maður á bara að hlusta á það sem mann langar. En því miður virðist maður sjaldnast fá frið til þess… og þá eru vinir manns eiginlega lang verstir… :p verða mest hneikslaðir :)...

Re: Radiohead - HAIL TO THE THIEF!

í Músík almennt fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ágætis grein hjá þér, þótt ég sé ekki sammála í öllu… Ég var ekki alveg viss hvernig ég var að fíla þessa plötu við fyrstu hlustun… fannst hún einhvernvegin ekki vera neitt sérstaklega “ný” en eftir tvær þrjár umferðir gat ég ekki hætt… er búin að vera að hlusta “stanslaust” á diskinn frá því hann lak á netið og er langt frá því að vera komin með leið á honum. Ég verð hinsvegar að vera algjörlega ósammála þér að “Sit down. Stand up” sé pirrandi lag… og finnst “the raindrops” parturinn...

Re: Radiohead - HAIL TO THE THIEF!

í Músík almennt fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ágætis grein hjá þér, þótt ég sé ekki sammála í öllu… Ég var ekki alveg viss hvernig ég var að fíla þessa plötu við fyrstu hlustun… fannst hún einhvernvegin ekki vera neitt sérstaklega “ný” en eftir tvær þrjár umferðir gat ég ekki hætt… er búin að vera að hlusta “stanslaust” á diskinn frá því hann lak á netið og er langt frá því að vera komin með leið á honum. Ég verð hinsvegar að vera algjörlega ósammála þér að “Sit down. Stand up” sé pirrandi lag… og finnst “the raindrops” parturinn...

Re: Lenging skólaársins og gæði menntunar

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég lenti einmitt í þessu í grunnskóla, að þurfa aftur og aftur að stroka út… Þetta er auðvitað engin kvatning og ef til vill ástæðan fyrir því að núna, þegar ég er að verða búin með menntaskólann, les ég mjög sjaldan meira um námsefnið nema það sem er til prófs, jafnvel þótt ég hafi gríðarlegan áhuga á efninu. Ekki það að maður lesi sér ekki stundum til um það sem maður hefur áhuga á en það er bara einhvernvegin búið að deyfa mann þannig að maður hlustar bara á það sem er sett fyrir og...

Re: Ný leið til að fækka sjálfsvígum !

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég vill nú frekar meina að jákvæð umræða um þunglyndi og sjálfsvíg séu af hinu góða heldur en að þau ýti mönnum seinasta skrefið fram af brúninni. Jákvæðar umræður stuðla að því að fordómar gagnvart þunglyndi og sjálfsvígum minnki og verði þannig viðurkenndari… Þannig hlýtur þessi jákvæða umræða um að fækka sjálfsvígum og hjálpa þeim sem þurfa á hjálp að halda að verða til þess að þeim sem líður illa geri sér frekar grein fyrir vandanum og leiti sér hjálpar. Auðvitað verða sumar umræður til...

Re: X-KYNSLÓÐIN

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
æi, úps… sé það núna að þú ert ekki orðinn 18… döhh að kíkja ekki á notendadraslið… my mistake. :P

Re: X-KYNSLÓÐIN

í Deiglan fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Geiri, ég vona að þú sért ekki orðinn 18 því lágmarkslaun fyrir 18 ára og eldri eru miklu hærri en þetta, eða rétt yfir 90 þúsund… minnir að það sé 93þúsund, án þess þó að ég sé alveg viss… Kíktu endulega á vr.is og sjáðu hvort það sé nokkuð verið að svindla á þér.

Re: Stelpur/Konur – hættið fordómunum !

í Tölvuleikir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þessi grein er þvílíkur sannleikur og ætti eins og einhver sagði, að fara í blöðin… Ég hef drullu gaman af því að spila tölvuleiki og fyrir nokkrum árum var ég föst í ákveðnum stríðsleikjum og ævintýraleikjum og tók alveg eftir þessum fordómum sem stelpur höfðu gagnvart þessu. Þegar stelpurnar fóru að spyrja hvað ég hefði verið að gera daginn áður kom skrítinn svipur á þær þegar ég sagðist hafa verið í tölvunni. Hins vegar voru það ekki bara þessir fordómar sem drógu úr því að ég spilaði...

Re: Genetic Sexual Attraction

í Deiglan fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Einhverjir hér eru búnir að vera að tala um að skildir einstaklingar eigi á hættu að eignast fötluð börn. Þetta er hins vegar ekki rétt nema þegar báðir foreldrar hafa sama gallaða genið, eins og Ihg benti á, sem getur alveg eins verið vandamál hjá óskildum einstaklingum og það eru því ekkert meiri líkur á því að skildir einstaklingar eignist fötluð börn. Hættan kemur ekki fram fyrr en eftir nokkrar kynslóðir og það er þá einmitt vegna þess endurtekin ræktun á sömu genunum verður til þess að...

Re: Æskudraumur

í Smásögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Fín saga… fékk alveg hroll undir lokin þegar hann fór aftur í tímann. Kannski óþarfa útskýringar í kringum sum smáatriðin (æi, skiptir ekki, bara nöldur í mér:P) En já, góð saga. :)

Re: Hamingjubær

í Smásögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég sé ekki hvernig það breytir nokkru að hann Halldór hafi skrifað svona… á ég að aðlaga skoðanir mínar að því sem þér finnst bara vegna þess að eitt frægasta skáld Íslendinga valdi að fara þessa leið… Jú, ég þóttist nú vita að hann Halldór “kallinn” Laxness hafi skrifað svona og er ekkert að setja út á hans skrif þó svo að skoðanir mínar samræmist ekki skoðunum hans, enda má ég alveg hafa mínar skoðanir og reyni að bögga ekki annarra manna skoðanir… en það er ekki rétt að líkja stafsetningu...

Re: Hamingjubær

í Smásögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég er ekki vön að böggast yfir stafsetningu… hef meira að segja aldrei minnst á hana hér á Huga svo ég muni, enda hef ég ekki efni á því… En þessi saga var svo morandi af fáránlegum villum að ég hafði einfaldlega ekki lyst á því að lesa hana… ég gat lesið einn þriðja áður en ég var orðin svo þreytt á þessu að ég hafði enga löngun til að lesa lengra… Að skapa eigin stíl getur hentað sumum, þótt mér þyki það nú dálítil sjálfselska því það á auðvitað eitt að ganga yfir alla og engar undanþágur...

Re: Á virkilega enginn á smásagnaáhugamálinu uppáhaldshöfund??

í Smásögur fyrir 23 árum
ég hef ekki lesið margar bækur með smásögum og á þannig séð engan uppáhaldshöfund, en… Eitruð epli, Gerður Kristný… mæli með henni :)<br><br>Þú ert ekki orðin drukkin ef þú getur legið á gólfinu án þess að halda þér í ;)

Re: Svefnleysi

í Smásögur fyrir 23 árum
nei, nei, ekkert frekar. ætli Freyja hafi nokkuð vitað hvað hún vildi og verið hrædd við að mynda tengsl…

Re: Virðingarleysi gagnvart íslenskum stelpum

í Rómantík fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég veit ekki hvað það kemur málinu við að vera á túr því það hefur ekki það mikið að gera með kynkvöt… Nú ef þú ætlar að fara að bera túrverki saman við greddu karla þá get ég vel skilið að þú haldir að ég geti enganvegin skilið ykkur en staðreyndir er samt sú að þótt ég sé ekki karlmaður þá verð ég samt gröð þannig að þótt þú skiljir ekki hvernig það er að vera á túr þá þýðir það ekki að ég viti ekki hvernig er að vera graður… Svo var nú þessi skoðun mín að karlmenn geti alveg hamið sig,...

Re: Virðingarleysi gagnvart íslenskum stelpum

í Rómantík fyrir 23 árum, 1 mánuði
Djöfulsins kjaftæði að karlmenn ráði bara ekkert við þesar hvatir sínar… Ef þú hefur ekki stjórn á hegðun þinni vegna þess að þú ert svo graður þá hlýtur eitthvaða ð vera að hjá þér væni… Þetta er ekki eitthvað sem karlmenn ráða ekki við og að konur vilji bara öryggi og börn er frekar gamaldags hugsunarháttur (já, ég veit þú varst ekki að alhæfa) Ég verð eiginlega að viðurkenna að þessi staðhæfing þín um að karlmenn ráði ekki við þetta kom ansi mikið við mig því þetta er eitthvað það...

Re: Virðingarleysi gagnvart íslenskum stelpum

í Rómantík fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er svo ótrúlega sammála ykkur sem hafa verið að mótmæla þessari grein… Það er altof algeng skoðun í þessu samfélagi að stelpurnar hér séu algjörar druslur þegar karlmenninrnir eru að gera alveg það sama… Stelpurnar geta jú ekki verið algerar druslur ef þær hafa enga druslu karlmenn til að sofa hjá, það segir sig bara sjálft. Ég er hins vegar sammála þér að það var ekki rétt af vinkonunni að “beila á þér” en svo er alltaf spurning hvort hún hefði nú ekki alveg skutlað þér heim fljótlega ef...

Re: Söknuður

í Ljóð fyrir 23 árum, 2 mánuðum
ég er sammála ih8myself… þetta er með þeim betri sem ég hef lesið hér… rosalega flott þótt það sé einfalt og maður finnur auðveldlega það sem þú ert að ganga í gegnum.

Re: Metallica - St. Anger - Summer Sanitarium Tour '03

í Metall fyrir 23 árum, 2 mánuðum
ÉG verð nú að segja að mér finnst Metallica vera að taka ótrúlega mikið niður fyrir sig með því að spila með Limp Bizkit og Linking Park… en það hafa jú ekki allir sama smekk og ég.

Re: Kaldur skilnaður!!

í Rómantík fyrir 23 árum, 2 mánuðum
kannski alveg óþarfi að vera eitthvaðað dreyfa þessu um allt ef þetta er ekki eitthvað sem maðurinn hafði gert áður… Það er auðvitað ógeðslegt að hegða sér svona og á engan hátt réttmætanlegt en ég hugsa að maðurinn sé örugglega með mikið samviskubit þannig að það er alger óþarfi að vera að eyðileggja fyrri honum með því að vera að dreyfa þessu um allt, það sýnir bara mest um hana sjálfa en ekki kallinn… mæli samt með áverkavottorði og kæru því svona á fólk ekki að fá að komast upp með án...

Re: Hvað finnst þér um fólk sem hittist á private.is?

í Rómantík fyrir 23 árum, 3 mánuðum
ég er alveg nákvæmlega sammála því sem greinahöfundur skrifar… þetta eru á margan hátt skynsamlegri aðferð til að hitta fólk, þótt þjóðfélagið sé víst ekki alveg búið að viðurkenna þessa vefi… Það er samt leiðinlegt við þessar síður hvað fólk er almennt latt að skrifa almennileg svör og halda uppi lengri samræðum en sem passa í eitt sms… og þá er kvenfólkið víst sérstaklega slæmt í þessum málum… :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok