Ég átti samtal á djamminu um helgina sem fékk mig til að hugsa ansi mikið.

Ég var með tveim vinkonum mínum á djamminu, Við skemmtum okkur rosalega vel og fljótlega eru þær báðar búnar að finna sér strák að daðra við.
Ég náttulega trúlofuð og læti svo ég sest bara niður og fer að spjalla við fólk. Eftir smá stund kemur náungi til mín og spyr afhverju ég sé svona alein. Ég segi bara eins og er að ég sé á föstu, djammandi með vinkonum mínum sem báðar eru á lausu og auðvitað er ekki við öðru að búast en að maður endi stundum einn á meðan þær eru að höstla.
Við höldum áfram að spjalla um þetta mál og tölum voða mikið. Svo verður hann rosalega þögull og fer svo að tala um að hann hafi aldrei hitt neina stelpu á Íslandi sem hagar sér og talar svona eins og ég, (hann var svartur og talaði ensku svo líklegast bjó hann ekki hér).
Hann talaði um að hver einasta stelpa sem hann hafi hitt hér á Íslandi hagaði sér eins og algjör drusla og að íslenskar stelpur væru þekktar fyrir að hoppa uppí rúm með hverjum sem er!
Hann sagðist viðurkenna að fyrst þegar hann sá mig þá hafi hann nú ætlað sér að næla sér í væna bráð fyrir kvöldið, en svo hafi hann talað við mig og hætt við, hann sagðist aldrei áður hafa borið virðingu fyrir íslenskri stelpu.

Hvað er málið??? Er þetta satt? Eru íslenskar stelpur virkilega svona?

Ok, við héldum áfram að spjalla um þetta og hann segir mér ýmsar sögur um hvernig stelpur hafa hagað sér hér á landi. Eftir langt spjall þarf hann að fara svo ég stend upp og fer að athuga með vinkonurnar. Þá er önnur þeirra stungin af með einhverjum gæja og hin er búin að næla sér í einhvern ítalskan og voða gaman hjá henni. Svo er staðnum lokað og allir eiga að fara út, hún lætur hann fá númerið sitt og svo skellum við okkur út. Þar hittum við einhverja stráka sem hún þekkti og skellum okkur með þeim í partý, kallinn minn var líka á djamminu með strákunum svo ég nennti ekki ein heim og ákvað að fara með. Eftir að hafa verið í þessu partýi í klukkutíma voru allir farnir og við tvær eftir með tveim strákum (réttara sagt mönnum, 28 og 36 ára) Mér var alls ekki farið að lítast á blikuna og fer að suða um að fara heim (hún var edrú á bíl) En nei, áður en ég veit af þá er hún búin að læsa sig inní herbergi með einum þeirra og ég ein eftir í stofunni með hinum!
Þetta var ég ekki að fíla en ég vildi ekki trufla þau inní herbergi svo ég tók leigubíl heim vegna þess að gaurinn var farinn að reyna ansi mikið að fá sínu framgengt.

Á leiðinni heim fór ég að hugsa mikið út í þetta og fattaði þá að þetta er nánast týpískt djamm hjá stelpunum, alltaf endað heima með einhverjum gæja ( og þeim finnst ekkert eðlilegra en að beila á vinkonur sínar fyrir einhvern gæja sem þær þekkja ekkert!)

Þetta er búið að vera mjög mikið í hausnum á mér og ég er búin að átta mig á því að svona hagar sér nánast hver einasta stelpa sem ég þekki.


Finnst ykkur þetta eðlilegt?? Og svo eru stelpur að kvarta undan því að þær fái enga virðingu frá hinu kyninu!! Eftir þetta þá er ég farin að skilja karlmenn vel, stelpurnar bjóða uppá þetta og þeir eru bara að nýta sér tækifærið!

Ég er ekki að alhæfa neitt, auðvitað erum við ekki allar svona.
En ég er samt alveg óendanlega hneyksluð og mér finnst ótrúlegt að maður hafi ekki áttað sig á þessu fyrr.

Hvað finnst ykkur?