Tommy Jönsson hjá Halmstad. Helvíti góður. Hann var keyptur til Liverpool hjá mér á öðru tímabili og brillaði í ensku úrvalsdeildinni. Ég held þú verðir að hafa sænsku deildina til að fá hann.
Án nokkurs vafa Ronaldinho. Hann er bara 20 ára eða eitthvað í byrjun leiks og er skráður betri striker en sjálfur Ronaldo. Hann verður líka miklu betri í framtíðinni. Ég er með hann á áttunda tímabili og maðurinn er hreinræktaður snillingur.
Ég var með Anelka hjá mér í Man Utd þegar hann hætti allt í einu að mæta á æfingar. Hann mætti ekki á einhverjar þrjár æfingar í röð og þá gaf ég honum Warning fyrir Unprofessional Behavor (fann ekkert meira viðeigandi). Þá varð hann brjálaður og heimtaði að vera settur á sölulista.
Alveg sammála. Hef pælt mikið í þessu. Það er fáránlegt að þú getir bara varað þá við og þess háttar en ekki hrósað þeim. Annað sem vantar er að sjá launin sín. Ef maður fær tilboð um stöðu hjá einhverju liði geturðu ekki einu sinni séð hvað er verið að bjóða þér í laun. Það finnst mér að ætti að vera þarna líka.
Ég veit ekkert um það hvort þú ert lélegur Manager eða ekki. En að vera kominn í 18. sætið með Chelsea er gríðarlega lélegur árangur. Ég spila alltaf með Speedið í very fast, hef alltaf gert það og mun alltaf koma til með að gera það. Annað er óheilbrigði.
Ég er á fimmta tímabili með Man Utd. Keypti Ronaldinho frá Paris SG fyrir 23 milljónir punda og hann er búinn að fara á kostum, skoraði 17 mörk, og var 8 sinnum maður leiksins í fjórtán síðustu leikjunum.
David Beckham á að mínu mati tvímælalaust skilið að vera einn af hæst launuðustu íþróttamönnum heims í dag. Michael Owen fær 14 milljónir króna í vikulaun með auglýsingatekjum og Beckham þarf ekki að vera eftirmaður hans. Frammistaðan í leiknum gegn Grikkjum sýnir hvað kappinn á skilið.
Ég fór á leikinn og sat hjá KA-mönnunum. Það kom mér rosalega á óvart hversu mikil stemmning var meðal þeirra í stúkunni, og þeir mega eiga það að þeir eiga hreint frábæra stuðningsmenn!
Aldrei hef ég orðið var við það að menn séu að beita Moussa kynþáttafordómum á leikjum. Hvað sem því líður er þetta mjög alvarlegt mál og ætti að taka vel á því.
Ég sá aðeins til hans á æfingu með KR um daginn og það sem ég get sagt er að hér er á ferðinni teknískur leikmaður og frekar góður skotmaður, að því er mér sýndist.
Það er ekki skemmtilegt að mæta Fylki svona snemma. Þetta verður samt skemmtilegur leikur, en alltof erfiður. Þetta verður í þriðja skiptið í sumar sem KR og Fylkir mætast.
KR hefur nú gengið frá samningi við hann, það var gert í nótt. Í gær var allt útlit fyrir að ekkert yrði af því að hann færi til KR, en í nótt var málunum komið í lag.
Það yrði mjög gaman að sjá Ísland í HM, svo sannarlega eitthvað sem maður á ekki beint að venjast. Möguleikarnir eru nú samt ekkert gífurlegir, við eigum kannski möguleika í að taka Búlgarana, en Tékkarnir…
Mörkin komu ekki á þessum mínútum, eins og ranglega kemur fram á mbl.is. Veigar Páll skoraði fyrsta markið á 82. mínútu, en hann kom inná sem varamaður á þeirri 72.
Framara tel ég ekki eiga mikla möguleika á því að krækja í einhver stig yfir höfuð í sumar. En lítið á björtu hliðarnar: Á næsta ári vinnið þið kannski alla leikina!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..