Fram stigalaust Nú þegar þrem umferðum er lokið í Símadeildinni er fram enn án stiga. . Fram tók á móti ÍBV í gær. Leikurinn fór varlega af stað en Framarar voru nokkuð hættulegri og gáfu ekki þumlung eftir. Spil ÍBV var fyrir neðan allar hellur og ekkert gekk hjá þeim í hálfleiknum. Frömurum tókst ekki að skora og staðan í hálfleik var 0-0. ÍBV hafði ekki skorað í þær 225 mínútur sem þeir höfðu spilað í Símadeildinni á þessu sumri. Eini ljósi punktur ÍBV í fyrri hálfleik var spilamennska Atla Jóhannssonar.

Allt annað var að sjá til ÍBV í seinni hálfleik en samt sem áður gekk boltinn illa á milli manna. Þegar skammt var liðið af seinni hálfleiknum meiddist Bjarni Geir Viðarsson illa og þurfti að flytja kappann í burtu með sjúkrabíl. Bjarni Geir snéri öklann illa þegar einn Framarinn sótti að honum og mikil bólga leit dagsins ljós. Alexander Ilic kom inná fyrir Bjarna Geir. Eyjamenn sóttu grimmt á upphafsmínútum seinni hálfleiks en ekki vildi boltinn inn. Það var svo Tómas Ingi Tómasson sem braut ísinn og skoraði fyrsta mark ÍBV í Símadeildinni á þessu sumri og það var sannkallaður þrumufleygur. Eftir markið drógu Eyjamenn sig nokkuð til baka og vörðust vel það sem eftir lifði leiks. Fyrsti sigur ÍBV í Símadeildinni var því staðreynt.

Tómas Ingi hleypir fersku blóði í liðið og á eflaust eftir að styrkja liðið mikið. Framarar þurfa lífsnauðsynlega að fara að krækja sér í stig en stuðningsmenn þeirra þurfa að bíða aðeins lengur því að nú kemur hlé í Símadeildinni vegna landsleikja.



Fram - ÍBV 0-1
0-1 Tómas Ingi Tómasson (77)