Grindavík tapaði og Ommel er búinn að semja við KR Grindavík tapaði í dag fyrri leik sínum gegn svissneska liðinu FC Basel, 0-3, en leikurinn fór fram í Sviss. Hinn 21 árs gamli ítalski miðjumaður Feliciano Margro kom svissneska liðinu yfir eftir aðeins sex mínútur og Kamerúnin Jean Michel Tchouga bætti öðru mark við 12 mínútum síðar. Staðan var því 2-0 í hálfleik fyrir Basel en Herve Tum skoraði síðasta markið fyrir Svisslendingana á 60. mínútu leiksins. Erfitt verkefni bíður Grindvíkinga um næstu helgi þegar seinni leikurinn fer fram í Grindavík.



Hollendingurinn Sergio Ommel hefur samið við Íslandsmeistara KR til loka tímabilsins. Ommel er 23 ára framherji og hefur verið á mála hjá Telstar undanfarin ár en lék þar áður með Groningen. Hann á einnig að baki leiki með U-21 liði Hollendinga.