Hermann ekki með gegn Möltu? Landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson, sem leikur með Ipswich, meiddist þegar hann var á æfingu með Fylki á mánudagskvöld. Á mbl.is kemur fram að hann hafi meiðst á kálfa, en á vísi.is segir að hann hafi hlotið skurð á hné. En ólílklegt er talið að hann verði orðinn leikfær á laugardag, þegar Ísland leikur gegn Möltu. Þá á Ísland leik gegn Búlgörum 6. júní.