Hvað varðar umræðuna um hvort sé flóknara hljóðfæri, píanó eða gítar, verð ég að segja að mér finnst gítarinn einfaldari ! mun einfaldari. Ef þú pælir í einu, Rockstar, hvort ætli það séu fleiri sem kunni grunninn á gítar eða píanó? Ég held að þeir séu fleiri sem eru færir um að halda uppi sumarbústaðastemmningu á gítar, en þeir sem hafa sambærilega kunnáttu á píanó. Píanó er mitt hljóðfæri og hefur alltaf verið og svo prófaði ég gítar í fyrsta skipti um daginn og það er bara piece of shit...