Góðan daginn kæru félagar!
Það er eitt sem mér finnst vanta í annars frábæran leik og það er möguleiki á því að hrósa leikmönnum sínum þegar mann langar til að hrósa þeim, t.d. ef þeir hafa skorað sigurmarkið í mikilvægum leik eða eru búnir að leika frábærlega í síðustu leikjum. Ég held að það gæti verið gott að get látið þá vita að maður sé ánægður með þá hvenær sem mann langar, ekki bara þegar einhverjir aðrir eru að hrósa þeim. Það gæti hvatt þá til að standa sig enn betur í framtíðinni!
Eða hvað finnst ykkur, endilega látið í ykkur heyra í sambandi við þetta.
Liverpool Best!!!
DZA