Ég var á leiknum og hef sjaldan liðið jafn herfilega. Þvílík niðurlæging að tapa á móti fimleikafélagi. Og ekki bara fimleikafélagi, heldur líka fimleikafélagi Hafnarfjarðar! En ég kenni bara búningunum um, við spiluðum í gulum búningum, sem voru sérprentaðir fyrir þennan leik. Annars get ég ekki sagt annað en að mínir menn hafi bara spilað hundilla. Það var engin hætta fyrir framan mark FH-inga, en hún var hins vegar til staðar hjá okkur, því miður.