Ezra, auðvitað eru vellirnir stutt frá hvorum öðrum og BIRK lokaðist skömmu síðar, en samt kom hann að góðum notum. Ég get ekki verið sammála þér að hann sé ónothæfur sem varaflugvöllur, því það hefur komið fyrir að þokuslæðingur liggur yfir Reykjanesskaganum en ágætis veður í Reykjavík. Ég tel það sjálfsögð mannréttinda íbúa þessa lands að hafa BIRK á sínum stað og eins og ég hef áður sagt þá yrði það stór slys ef völlurinn yrði lagður af.