Hvað finnst ykkur um að reyna að gera litla flugbraut á Laugarvatni ?
Nú er frekar þétt sumarbústaðarbyggð þarna alls staðar í kring og ágætis grundvöllur fyrir því að reyna gera flugbraut !
Síðan er örugglega hellingur af sætum píum þarna í íþróttaskólanum :) !
En svona án gríns, hvert er best að snúa sér í þessum málum og við hvern á að bera þetta undir ?
Þessi undirskriftalisti sem látinn var ganga fyrir völlinn í Þórsmörk viðrðist hafa gengið og er ekki hægt að gera hið sama fyrir Laugarvatn ?
Hvað finnst ykkur ?
Ég hef séð vélar lenda þarna á túni inní Miðdal en það er víst allt í leyfisleysi og það getur nú bara endað með rugli og leiðindum !