Ég er meðlimur í björgunarsveitinni á Laugarvatni og síðasta sunnudag (páskadag) þá fór ég ásamt tveimur öðrum innað tjaldafelli (Ef einhverjir vita ekki hvar Tjaldafell er þá er það rétt hjá Skjaldbreið) til þess að hjálpa fjórum jeppum sem voru í vandræðum. Þegar við komum að jeppunum þá brá okkur frekar mikið þar sem þarna var ein Feroza á 31´dekkjum, Pajero á 35´, Hilux á 35´ og eldri hilux á 36´. Mér fannst þetta kannski ekki vera alveg réttu bílarnir til þess að vera að ösla í krapa og þungu færi, en samt sem áður þá voru þeir með góð fjarskiptatæki og gátum við því haft samband við þá. Annað sem mér fannst svolítið skrítið var að þegar við fengum útkall þá var okkur sagt að þeir hefðu ætlað í dagsferð og ekki komið til byggða á réttum tíma. En þegar við hittum þá voru þeir með svefnpoka og nesti til að minnsta kosti tveggja daga í viðbót. En ætlun mín með þessari grein er sú að koma kannski af stað smá umræðu um jeppakallana á slyddujeppunum, sem skella sér á fjöll og vita kannski ekkert hvað þeir eru að fara út í. Eysi Sig