Ég skrapp á ljósmyndasýninguna sem ljósmyndaklúbburinn Fókus er með að Straumi og vil eindregið hvetja sem allra flesta til að líta við. Þar eru alveg frábærar myndir, vel uppsett sýning og mjög gott viðmót þeirra sem sitja yfir. Svo kostar ekkert á sýninguna (Stór plús það)
Einnig vildi ég nota tækifærið til að ítreka Atburðakubbinn hérna til vinstri. Það eru nokkrar sýningar í gangi þessa dagana og um að gera að skoða hvað hinir eru að gera.