Ég fór í Kringluna í gær, og guð minn góður, hvað fötin voru orðin ljót! Ég meina það, einhver hræðileg 70-80's tíska er komin aftur, tíska sem ætti helst að vera gleymd og grafin! Sniðin er orðin klikkuð, litasamsetningin í helsta máta fáránleg og allt þetta toppa fáránlegir fylgihlutir. Ég er ekki á móti litum, mér finnst fínt að fá smá liti eftir þetta gráa tímabil sem varaði í nokkur ár, en ég meina það er samt ennþá hægt að hafa fötin einföld!
Já og eitt orð um skóna. Hvaða fífli datt í hug að koma með þessa líka viðbjóðslegu pinnahæla og mjóar tær aftur? Er einhver staður þar sem er hægt að kaupa sér flotta skó sem eru ekki stígvél og án pinnahæla? Annars á ég eftir að ganga í eldgömlum skóm næst árin…
Sorrý allir sem ég hef móðgað.