Okey,,, ég hef mikið tekið eftir því í skólanum mínum að stelpurnar raki á sér lappirnar (við erum í 8.bekk), þannig að þeir eru alveg sköllóttir! En allaveganna ég hafði ekki gert það (fyrr en í gærkvöldi!), og tók mig til og RAKAÐI þá sköllótta! Samt bara upp að hnám… Ég er soldið nervös núna, vinkonur mínar segja að ég fái útrbot… Það er nefnilega eitt sko (og núna sjáið þið hvað ég er mikil ljóska!) og notaði EKKERT! reyndar notaði ég rakvél, en ekki raksápu :S… Ég er sko versta stelpan í þessu!

En það var sko ástæða fyrir þessu, að ég skyldi raka mig!, allar stelpurnar rökuðu sig (sem er náttúrulega ekki ástæða því maður Á að ver öðruvísi :)…) og ég þorði ekki að vera í hnébuxum, og einn strákur var búinn að commenta þetta =) “ertu með svona skítugar lappir eða eru þetta hár?”… já þannig var nú það,,,

Einhver sem vill ENDILEGA koma með uppástungu um hvað ég get gert, á ég að láta þetta vera? eða kannski kaupa mér raksápu (sem ég veit ekkert hvað er)… og ef það er einhver strákur sem er að lesa þetta, svo hann heldi ekki að ég sé einhver hellisbúi þá eru allar stelpur með hár á löppunum, og hvað finnst honum um það?

()()
(**)
(“)(”)