Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: a borga heim?????

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jú, það er líka munur hvað fólk notar sér mikið aðstöðuna heima. Þegar ég var í HÍ var ég aðallega þar frá 8 á morgnana og oft til 10 á kvöldin. Kom bara heim til að sofa og borðaði því aldrei heima, skítti ekkert út, notaði ekki leirtau, þvoði mín eigin föt þegar þurfti. Hins vegar voru sumir skólafélagar mínir nestaðir að heiman á hverjum degi og alltaf farnir heim í kvöldmat kl. 7.

Re: Hugarar, ég þarf hjálp! Samræmdu prófin í dönsku

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Gamall dönskukennari sem ég var með í framhaldsskóla kenndi okkur hvernig dönsku tölurnar koma til. Þetta er eitthvað eldgamalt kerfi og byggir á 20. Þetta byrjar á 50 - halvtreds eða halv tredje sinds tyve (hálfur þriðji sinnum 20 eða 2,5 sinnum 20 = 50), svo er 60 - tres, tre sinds tyve, 70 - halvfjerds eða halv fjerde sinds tyve, 80 - firs, fire sinds tyve, 90 - halvfems, halv femte sinds tyve. Það eru margir danir sem vita þetta ekki einu sinni.

Re: Fitubollurnar í Friends...

í Gamanþættir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þeir búa til feitar latex kinnar og meika svo þú sérð ekki samskeytin. Það er ótrúlegt hvað er hægt að gera með latex. Ég sá einmitt heimildarmynd um daginn um mann sem var að vinna hjá CIA við að búa til dulargervi fyrir njósnarana þeirra og hann sýndi aðeins hvað hann gæti gert. Hann hætti hjá CIA en í staðinn fyrir að fara í kvikmyndaiðnaðinn fór hann að búa til líkamshluta fyrir fólk sem hefur misst í slysum eða vegna sjúkdóma. T.d. bjó hann til eyra á stelpu og öxl á aðra og...

Re: Skólabúningar

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ef svona búningar væru teknir upp, þá held ég ekki að þú hefðir neitt val. Í mínum barnaskóla voru til dæmis reglur um leikfimisföt. Allir strákarnir voru í hvítum bómullarstuttbuxum með einum rassvasa, allir berir að ofan og berfættir. Allar stelpurnar voru í svörtum leikfimisbolum með stuttum ermum. Ef þú mættir ekki með rétt föt þá fékkstu ekki að fara í leikfimi. Punktur og basta. Þessar reglur voru reyndar lagðar af þegar ég var í 10 ára bekk. Alla vega held ég að ef þeir tækju einhvern...

Re: Hugarar, ég þarf hjálp! Samræmdu prófin í dönsku

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fáðu þér bara einkatíma hjá einhverjum sem er góður í dönsku. Foreldrar þínir eru ábyggilega til í að punga út smá pening fyrir það til þess að þú fáir góða einkunn. Þú getur t.d. veitt þér dönskunema úr HÍ með því að setja upp auglýsingu í byggingunni þar sem þeir sitja og sötra kaffi eða hafa samband við þá á http://www.hi.is/nam/germnord/danska/dania.html. Þ.e. ef þú ert í Reykjavík. Ef ekki, veit ég ekki. Kannski gætir þú komið þér vel við einhvern skólafélaga sem er góður í dönsku?

Re: að borga heim?????

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég tók mér frí frá skóla á sínum tíma og borgaði þá heim, upphæð sem var um 20% af fastalaununum mínum þannig að það væri kannski eins og 20 þús. ef ég hefði verið með 100. Svo fór ég í skóla og þá ákváðu foreldrar mínir að ég þyrfti ekki að borga heim vegna þess að þau vildu hjálpa mér að vera í skóla. Annars fer þetta líka eftir því hvort þú ert með námslán eða ekki. Ef þú ert ekki með námslán, hvaðan áttu þá að fá pening til að borga heim? Hins vegar ef þú ert með námslán, þá eru þau...

Re: Samband foreldra og barna/unglinga

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Næst þegar mamma þín ætlar að setjast niður og tala við þig, þá skaltu bara segja við hana að þú hafir því miður ekki tíma þar sem þú hafir einmitt verið á leiðinni að opna fyrir sjónvarpið til að horfa á einhvern þátt :P Þú getur líka bara sagt þetta beint við hana næst þegar hún nennir ekki að hlusta á þig. Spurðu hana bara hvernig hún geti ætlast til þess að þú komir til hennar með vandamál þegar hún hefur ekki tíma fyrir þig.

Re: Landsbyggðin?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fólk getur alveg búið úti á landi ef það vill. Hins vegar getur það þá ekki ætlast til að fá sömu þjónustu og ef það væri í Reykjavík. Kannski óréttlátt en það er náttúrulega bara hagkvæmnismál að það sé einn spítali sem er fullkomnastur, einn háskóli o.s.frv. og eðlilegt að þetta sé í Reykjavík þar sem flestir búa. Sama með stofnanir og aðra þjónustu líka. Ég þekki fólk sem hefur búið úti á landi og flutt í bæinn og öfugt. Það eru kostir og gallar við alla staði sem hægt er að búa á og fólk...

Re: Leiðinlegt val á nemendum

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Einhvern tímann heyrði ég að ef maður væri orðinn 18 væri ekki hægt að skikka mann í fornám. Fyrir utan það veit ég ekki. Kannski þekkir hann bara einhvern á skrifstofunni. Hins vegar er ekkert betra að sleppa við fornám. Það þýðir bara það að hann verður alltaf í vandræðum með stærðfræðina á meðan þú hefur tækifæri til að byggja upp góðan grunn. Ég fór í fornám og svo þegar ég var kominn í stæ 203 var ég með 9 og 10 meðan sumir sem höfðu sleppt fornámi voru að fá 1 og svoleiðis.

Re: Hvað hræðist kötturinn þinn ?

í Kettir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Kisa mín er ekki hrædd við neitt. Henni er reyndar ekkert vel við ryksuguna og passar sig að vera ekki nálægt henni en annars fer hún í allt og skoðar allt, fer í vaskinn og sleikir dropana af krananum o.s.frv.

Re: Coke vs Pepsi

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég þekki bæði fólk sem drekkur bara kók og neitar að drekka pepsi og fólk sem drekkur bara pepsi og neitar að drekka kók. Mér finnst bæði gott en finn alveg muninn. Ég drekk hins vegar enga aðra kóladrykki eða diet. Mér finnst kók fljótara að verða flatt (og kók er vont flatt) þannig að ef ég er að kaupa 2ja lítra til að eiga, þá kaupi ég pepsi en ef ég er í bænum og er að kaupa 1/2 lítra til að drekka á staðnum, þá var það alltaf kók en hefur breyst eftir að pepsi twist kom. Ef ég er í...

Re: hatur nýbúa á konum, hér á íslandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Íslenskan þín er alla vega góð :) Jú, maður hefur heyrt þetta um að það sé í lagi að fá vel menntað fólk, sérstaklega ef það er kristið og hvítt (eða alla vega ekki mjög svart). Hins vegar veit ég ekki hvað fólk sem hefur þær skoðanir myndi vilja gera við fiskvinnsluna. Ekki vill það vinna þar sjálft? Mér finnst bara um að gera að taka útlendinga inn svo lengi sem það er til vinna fyrir þá. Ég vil endilega líka að þeir séu með hreina sakaskrá og ef þeir brjóti af sér á Íslandi verði þeir...

Re: Hefur þínum síma verið stolið?

í Farsímar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég var að fá það staðfest frá Tal að þeir geta *ekki* lokað fyrir símann með IMEI númerinu. Síminn getur lokað og mælir jafnvel með því þar sem þjófurinn eða sá sem keypti símann fer oft með hann í viðgerð þar sem hann “virkar ekki” og finnst hann þannig :D Íslandssími getur líka lokað fyrir símann. Tal getur hins vegar ekki lokað þ.a. þjófar og kaupendur stolinna síma eru því öruggir með TalFrelsi.

Re: Minn elskulegi sími.

í Farsímar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég er ekki með pin númer og hef heldur aldrei týnt mínum. Ég skil hann heldur aldrei eftir neins staðar þannig að ef einhver ætlaði að stela honum yrði hann að lemja mig í hausinn og taka hann af mér :)

Re: Brjálæði

í The Sims fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þú þarft ekkert að eiga 5 sims leiki. Fyrsti Sims, alla vega ef þú sækir patchinn sem lagar böggana er bara langbestur. Hitt dótið er bara nýir hlutir sem er gaman að hafa en þú getur alveg lifað án. Livin' it up er fínn en þú þarft ekkert meira.

Re: Húsið mitt WEIRD

í Dulspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fáðu þér reykelsi og þegar enginn er heima (til að gera grín að þér) skaltu labba inn í hvert herbergi og segja öllum draugunum að þeir séu dauðir og geti bara farið að hypja sig. Ef draugagangurinn hættir við það, þá er það bara gott mál. Ef ekki, þá ertu einu reykelsi fátækari :) Annars getur líka vel verið að þetta séu bara tilviljanir. Stundum detta bara hlutir án þess að neitt sé í gangi.

Re: Veit ekki hvað þetta er

í Dulspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Spurðu heimilislækninn þinn. Þetta gæti verið einhver sjúkdómur. Ég vakna stundum upp við það að ég fæ krampa. Það er eins og allur líkaminn kippist til og ég vakna við þetta en það er bara einn kippur því krampinn er farinn um leið og ég vakna. Svo stundum dreymir mig mjög raunverulega að ég vakni og það sé einhver inni í íbúðinni og ég get ekki hreyft mig. Þetta eru mjög óhuggulegir draumar og það sem ég hef tengt þetta við er að ég hafi borðað rétt fyrir svefninn eða mér orðið of heitt....

Re: Astmi

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Brjálaður íþróttakennari en það þarf líka að segja krökkum sem eru með astma að hætta strax ef þau finna fyrir einhverju, hvað sem kennarinn segir. Ef krakkinn hættir og neitar að hlaupa, þá getur skólastjórinn í mesta lagi skammað hann eða rekið úr skólanum og þá geta foreldrarnir talað við skólastjórann og útskýrt málin. Hins vegar hefðir þú auðveldlega getað fengið enn verra astmakast og jafnvel dáið af því að halda áfram. Sama með ofnæmi. Frændi minn er með ofnæmi fyrir fiski og var...

Re: Þunglyndi....eða ekki..?

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég fékk einu sinni þunglyndi og það lýsti sér þannig að ég að vísu fór í vinnuna en kom mér varla að því að gera neitt. Oft magnaði ég upp hjá mér einhver einkenni þess að ég væri veikur svo ég þyrfti ekki að fara. Þegar heim var komið var svo háttað undir sæng uppí sófa og imbinn á fram á kvöld en þá fór ég að sofa. Ég hafði ekki neinn skapaðan áhuga á að gera neitt og þegar ég hætti að nenna að fara á netið, þá fór ég nú fyrst að hafa áhyggjur :) Nú er líka þunglyndi í ættinni þannig að ég...

Re: Vændi á Íslandi

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég var líka að vinna við forritun hjá fyrirtæki sem var meðal annars með símatorg og það komu oft svona auglýsingar inn á stefnumótalínuna. Ef það var ekki sagt vændi beint, þá var þeim hleypt inn, enda alltaf skortur á auglýsingum frá konum. Svo lenti ég líka einu sinni í því að þurfa að hlusta á svör við auglýsingum vegna þess að eitthvert konugrey hafði lent í því að einhver óvinkona hennar hafði lesið inn nafnið hennar og símanúmer sem svar við fullt af auglýsingum og það stoppaði ekki...

Re: Minn elskulegi sími.

í Farsímar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er spurning hvort þú ert með pin númer á símanum eða kortinu. Ef það er á kortinu, þá er hægt að setja annað kort í og nota símann þannig. Ef það er á símanum, þá virkar hann ekki með öðru korti. Þegar þú talar um að loka símanum, þá ertu bara að loka númerinu þannig að þjófurinn geti ekki tekið við símtölum til þín eða hringt á þinn kostnað. Hins vegar ef þú ert með pin númer á kortinu, þá getur hann það ekki hvort sem er. Ef símanum væri í alvöru stolið gætirðu notað IMEI númerið til...

Re: hatur nýbúa á konum, hér á íslandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Reynslan sýnir að börn taka meira upp eftir jafnöldrum sínum en foreldrum þannig að þessir menn myndu lenda í vandræðum með dætur sínar (og kannski syni líka) þegar þær ætla að fara að haga sér eins og Íslendingar. Halim Al sagði einhvern tímann í viðtali að hann hefði ekki viljað að dætur hans myndu alast upp á Íslandi þar sem krakkar eru úti allar nætur og rífa kjaft við foreldra sína. Kannski kemur það líka upp hjá sumum þessara manna þegar börnin fara að stálpast að þeir vilja flytja til...

Re: Börn og Hundar

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ef hundur hefur einu sinni sýnt af sér að bíta svona rosalega, þá myndi ég alla vega aldrei treysta honum aftur. Segjum kannski að einhver sem er ekki með börn vill taka við hundinum til að honum verði ekki lógað. Svo kannski deyr nýi eigandinn 2-3 árum seinna og hundurinn kannski lendir inni á heimili með börnum án þess að neinn viti neitt hvað hann gerði áður.

Re: Max Dúlla

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Vá, ein svolítið góð með sig :P Ég held nú annars að hundar séu betri í uppeldi hundabarna en fólk, rétt eins og mannfólk er betra í uppeldi mannabarna en hundar ;) Hins vegar ef tíkin nennti þessu ekki lengur þá verður bara að hafa það. Gangi þér bara vel :)

Re: Sanngirni vs. Hagkvæmni

í Heimspeki fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Einkavæðing ríkisfyrirtækja þarf ekki bara að vera hagkvæmnismál heldur getur líka verið sanngirnismál. T.d. ef ég er í samkeppni við ríkisfyrirtæki, þá finnst mér ekki mjög sanngjarnt að það geti niðurgreitt sína þjónustu m.a. með sköttunum sem ég og mitt fyrirtæki borga. Almenningi finnst hins vegar kannski ekki sanngjarnt að það þurfi að hætta að niðurgreiða og það muni þurfa að borga markaðsverð fyrir þjónustuna en þeim sem nota ekki þjónustuna finnst heldur ekki sanngjarnt að hún sé...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok