Jæja núna er Max búinn að vera heima í 3 daga, hann verður 5 vikna eftir 2 daga :). Þegar hann var hjá mömmu tíkarinar þá var ógeðsleg lykt af feldinum og út úr honum og hann fór ROSALEGA úr hárum. Hún var að gefa honum pedigree eins og ég var búin að segja hér fyrir neðan en ég skipti um fóður. Ég er að gefa honum purina pro plan og hann er sko allt annar. Það er komin góð lykt af feldinum, miklu betri lykt út úr honum og orðinn svaka kátur. Hann gegnir yfirleitt þegar ég segi “Max komdu” og “Max nei”, svo fór ég að venja hann á að pissa og kúka úti og það gengur svona ljómandi vel, hann vælir þegar hann vill fara út.

Mér finnst þetta ótrúlegt miðað við að hann er bara búinn að vera hjá mér í 3 daga (þetta er 3 dagurinn). Það sem hann elskar er að fá að kúra í mig, helst alveg klestur við mig, hann getur sofið endalaust svoleiðis.

Þetta er bara eins og að vera komin með ungabarn aftur, ég vakna með honum á nóttunni og legg mig með honum á morgnana þegar mínar dætur eru farnar í skóla og leikskóla. En allavegana að þá er ég að springa úr stolti og finnst frábært að vera komin með litla strákinn minn. Ég held allavegana að ég hafi ekki verið að gera vitleysu með að taka hann svona snemma :)))

Kveðja
HJARTA í hundaorlofi :Þ
Kveðja