Jæja. Ég er nú í 10. bekk og samræmdu prófin eru framundan. Ég hef engar sérstakar áhyggjur af þeim, ég er ágætur námsmaður og hef alltaf fengið svona 8-9 einkunnir. Enska er eitthvað sem ég get léttilega, ég er 9-10 maður í ensku. Íslenska er ágæt hjá mér, ég er ekki góður í málfræði en ég er með pottþétt 10 í stafsetningu. Hin fögin eru bókleg og ég er fremur góður í bóklegum greinum. Stærðfræði er ekki mín sérgrein, en ég er með a.m.k. 7 þar, nema að prófið verði eins og í fyrra. En svo er danskan.

Ég er einfaldlega ekki góður í dönsku. Ég hef ekki nægan orðaforða til að skrifa stíl, og ég hef engan skilning á þessum danska æluhreim, og þess vegna eru upplestrar vonlausir hjá mér. Ég man alltaf eftir 4,5 einkuninni í upplestri í fyrra. :( Ég er einfaldlega á eftir, flestir í bekknum (ég er í hraðferð) ná þessu miklu betur en ég. Það kemur líklega niður á mér að ég hef aldrei búið í Skandinavíu eins og svo margir aðrir.

Svo að ég bið ykkur hugara að segja mér hvernig þið fóruð að því að undirbúa ykkur undir samræmdu prófin. Ég er úrkula vonar að ég nái þessu í þeirri stöðu sem ég er í núna.
She's well acquainted with the touch of the velvet hand, like a lizard on a windowpane