Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: hatur nýbúa á konum, hér á íslandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér þætti ekkert að því ef landvistarleyfi manna sem brjóta af sér væri hreinlega bara tekið af þeim. Þá kærir hún manninn fyrir líkamsárás og ef hann væri dæmdur sekur, þá tæki hann út sína refsingu og væri svo sendur heim med det samme. Mér finnst hins vegar ólíklegt að það sé svoleiðis í raun :(

Re: Max Dúlla

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Af hverju tókstu hann svona snemma? Ég fékk minn hund 4 vikna og það blessaðist en hann var alltaf taugaveiklaður og dýralæknirinn sagði að það væri út af þessu.

Re: Börn og Hundar

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég sá þátt um lýtalækningar í sjónvarpinu þar sem var sagt frá fólki sem fengu sér pitbull hvolp um leið og sonur þeirra fæddist. Þeir ólust upp saman en þegar þeir voru 2ja ára skildi mamman þá smástund eftir eina í garðinu. Þegar hún kemur út aftur, þá liggur strákurinn grenjandi en hreinlega vantaði á hann andlitið. Hundurinn hafði tekið varir, kinnar og nef í einum bita. Það var náttúrulega reynt að laga þetta með því að taka skinn annars staðar frá og búa til flipa og það tókst þó hann...

Re: Segðu frá fyrsta árekstrinum þínum!

í Bílar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Pabbi minn vildi heldur aldrei lána mér bílinn fyrst þegar ég fékk prófið. Þú verður annað hvort að fá að keyra með honum og sanna þig þannig að hann treysti þér eða bara fá þér eigin bíl. Það er víst ekki skylda fyrir foreldra að lána krökkunum sínum bílinn sinn :)

Re: NETverslanir

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég reyndi einu sinni að panta bók frá Amazon en fékk hana aldrei. Hins vegar var hún heldur aldrei skuldfærð svo ég var ekkert að pirra mig yfir því. Ég veit um einn mann sem fór að lenda í því að það fóru að koma undarlegar skuldfærslur á visa kortið hans eftir að hann pantaði frá Amazon en ef þú fylgist vel með og kvartar í visa þarftu líklega ekki að borga svoleiðis. Hins vegar veit ég um marga sem hafa pantað oft og hafa bara góða reynslu. Ef þú pantar bara einn disk, þá er...

Re: Dauðarefsingar?

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Önnur Mósebók, 21 kafli: 23 En ef skaði hlýst af, þá skalt þú láta líf fyrir líf, 24 auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hönd fyrir hönd, fót fyrir fót, 25 bruna fyrir bruna, sár fyrir sár, skeinu fyrir skeinu. Þriðja Mósebók, 24. kafli: 19 Og veiti maður náunga sínum áverka, þá skal honum gjört hið sama, sem hann hefir gjört: 20 Beinbrot fyrir beinbrot, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hinn sami áverki, er hann hefir veitt öðrum, skal honum veittur. Svo mætti Jesú og sagði: Matteus 6:15 - En...

Re: Dauðarefsingar?

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er nú ekki sérlega gáfulegt og ég get sagt þér af hverju. 1. Ef þú drepur morðingja, þá er það samt morð og þú ferð í steininn. 2. Systir þín kemur ekki til baka. 3. Morðinginn þarf ekki að þola neina refsingu þar sem hann er dauður. 4. Fjölskylda þín missir bæði systur þína sem er dáin og þig sem fórst í steininn.

Re: Nýjar tegundir

í Kettir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér finnst nú bara fínt að eiga venjulegan húskött :)

Re: Dauðarefsingar?

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn er í gamla testamentinu. Svo kom Jesú og sagði að við ættum að fyrirgefa. Ef þú ert kristinn áttu að fyrirgefa. Ef þú ert gyðingur, þá ferðu líklega eftir auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, líf fyrir líf o.s.frv. (held það standi meira að segja líka líf fyrir líf í biblíunni þó það sé ekki eins frægt). Ég er hins vegar trúlaus þannig að ég fer bara eftir því sem mér finnst skynsamlegt :)

Re: Minn elskulegi sími.

í Farsímar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jú, ef þú ert ekki með neitt leyninúmer og símanum er stolið, þá getur sá sem stelur honum notað upp alla inneignina þína þangað til þú lætur loka númerinu. Ef þú ert með leyninúmer á kortinu en ekki á símanum, þá getur þjófurinn tekið kortið úr og keypt sér sjálfur kort og sett í símann og notað hann þannig. Hins vegar ef þú ert með leyninúmer á símanum sjálfum, þá getur hann ekki notað símann, þó hann skipti um kort og myndi því kannski frekar skila honum og reyna að fá fundarlaun eða...

Re: Skólabúningar

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jú, þú myndir eiga fleiri en einn skólabúning. Alla vega 2 til skiptanna. Ég myndi alla vega ekki treysta litlum krökkum til að halda fötunum hreinum alla vikuna :) Hins vegar sæist það náttúrulega áfram á krökkum þar sem foreldrar eru í óreglu og þvo ekki af þeim. Málið er að þegar föt eru fjöldaframleidd á alla skólakrakka, jafnvel þó það væri bara einn skóli, þá verða þau miklu ódýrari en sambærileg föt sem þú kaupir útí búð. Krakkarnir eru því í ódýrum fötum mestallan daginn og...

Re: Dauðarefsingar?

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Í Bandaríkjunum er það alla vega dýrara að hafa dauðarefsingar vegna þess að til að minnka líkur á að menn séu dæmdir saklausir þá fá þeir margar áfrýjanir og ríkið verður að skaffa þeim lögfræðing. Það er hins vegar algengt þar að menn eru dæmdir saklausir. Líklega vegna þess hvernig réttarkerfið hjá þeim virkar. Löggan reynir hvað sem hún getur til að ramma inn náungann sem þeir hafa fundið. Saksóknari gerir hvað sem hann getur til að láta dæma manninn sem löggan færði honum. Lögfræðingur...

Re: Rakstur, bólur ?

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Notaðu rafmagnsrakvél. Líka gott fyrir þá sem eru viðkvæmir í húðinni :)

Re: Skólabúningar

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Já, stráhatt ;) Annars þá er líka ástæða til að taka svona upp til að venja krakka við að þú getur ekki verið í hverju sem er. Skólinn er að vissu leyti undirbúningur undir atvinnulífið og þess vegna fær maður t.d. skammir fyrir að mæta seint eða skrópa vegna þess að það gengur náttúrulega ekki þegar þú ert kominn í vinnu. Eins með vinnu, þá er þess oft krafist að þú sért í ákveðnum fötum, jafnvel þó það séu ekki einkennisbúningar þá er á mörgum stöðum ekki hægt að mæta til fara eins og leppalúði.

Re: Fjölskylduboð!

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Af hverju ertu þá að mæta?

Re: Skólabúningar

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Já, eða bara hætta í skólanum þar sem þú ert búinn með skylduna og það getur enginn neitt þig til að vera þarna :) Hins vegar hef ég aldrei heyrt neinn tala um að taka upp skólabúninga í framhaldsskólum, bara grunnskólum.

Re: Skólabúningar

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Áslandsskóli notar held ég skólabúninga en ég hef ekki heyrt að neinn annar skóli ætli að byrja á því. Hins vegar veit ég ekki af hverju vinur þinn heldur að það yrðu að vera flauelsbuxur, bindi og húfa. Það gæti alveg eins verið t.d. íþróttagalli, kannski með merki skólans í jakkanum eða eitthvað svoleiðis. Eða Alcatraz búningur, gallabuxur og gallaskyrta :) Í Englandi eru skólabúningar oft dökkar buxur og jakki, hvít skyrta og bindi í litum skólans. Stundum peysa líka. Stelpur oft í...

Re: Veikindi foreldra...

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þú getur samt komið þér í samband við Parkinson félagið í gegnum síma eða netið og náð í einhvern sem þú getur spjallað við um sjúkdóminn.

Re: Veikindi foreldra...

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér finnst að þegar búið er að greina svona sjúkdóm ætti að fræða alla fjölskylduna um hvernig sjúkdómurinn lýsir sér og hvað muni gerast. Börnin líka að því leyti sem þau hafa skilning til. Ég held að það vanti bara einhverjar reglur um hvað á að gerast og hver á að gera það.

Re: grrr ég hata strákana í skólanum... FARTÖLVUR!

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Vertu bara rosa leiðinlegur og kvartaðu við skólastjórnina. Það ætti alla vega ekki að mega vera með hávaða á bókasafni þar sem fólk væntanlega ætti að vera að lesa eða læra. Í matsalnum kannski annað mál en hvernig ætli því yrði tekið ef þú t.d. mættir með gettóblaster til að spila þína tónlist?

Re: Laser eða bleksprautu?

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Viltu endilega laser? Málið er að ef þú kaupir þér ódýran laser, þá gætirðu verið að fá jafn hraðvirkan eða hraðari bleksprautu fyrir sama verð og með laser færðu ekki lit nema þú sért tilbúinn að eyða multi pening. Svo eru þeir oft hægir í gang, alla vega þeir sem ég hef kynnst þar sem ég hef verið að vinna. Samt.. ef þig langar í laser, þá er um að gera að skella sér á einn svoleiðis :) Ég á núna Lexmark sambyggðan skanner og prentara og hefur reynst vel. Ég átti áður Canon og hann var...

Re: Kynjaskipting í skólum

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég veit ekki hvernig ég á að segja þér það en aldursskipting er nú þegar í gangi. Almennt eru krakkar í 6 ára bekk 6 ára þegar skóli hefst að hausti eða þá að verða 6. Krakkar í 7 ára bekk 7 o.s.frv. Ástæðan fyrir þessu er að krakkar sem eru 6 ára eru yfirleitt tilbúin að læra sömu hlutina og eiga miklu frekar heima í bekk með hverju öðru heldur en með t.d. þeim sem eru 9, 12 eða 15. Strákar og stelpur eru heldur ekki eins. Kynin hafa allt annað félagslegt umhverfi, allt aðrar...

Re: Segðu frá fyrsta árekstrinum þínum!

í Bílar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Fyrsti áreksturinn sem ég man eftir var þegar öll familían var að fara í bæjarferð og þar sem pabbi var að keyra Borgarholtsbrautina bakkar einhver frekar syfjaður náungi út úr innkeyrslunni sinni og beint inn í hliðina á okkur. Sem betur fer meiddist enginn en farþegahurðin var ónýt. Ég er síðan alveg hræðilegur ökumaður og alltaf að lenda í einhverju. Fyrsti áreksturinn minn var þegar ég var búinn að eiga bíl í 1/2 ár, hafði ekki mikið keyrt fram að því. Ég var að smeygja mér inní stæði og...

Re: hvað kostar að láta setja fyllingar????

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Jú, ég hugsa að það hafi verið svona dýrt af því það brotnaði af henni. Hann þurfti að setja ramma utan um og steypa upp hornið sem brotnaði. Tannlæknar eru annars mjög mis-dýrir. Þú ættir kannski að fara til eins og fá verðmat. Þú getur líka skráð þig sem tilraunadýr í tannlæknadeild HÍ og sjá hvort þeir geta tekið þig inn. Ef þetta er mikið þá gætirðu samt verið að spara slatta, jafnvel þó þú þurfir að skreppa til Reykjavíkur. Ég veit til þess að fólk hafi fengið gert við á afborgunum...

Re: Getiði sagt mér...

í Hugi fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ef þú meinar spjall þá er visir.is (innherjar), strik.is (spjallþræðir) og torg.is (umræður). visir.is er hins vegar allt of hægvirkur og flestar umræður þar hálfdauðar nema kannski pólitík og trúmál. strik.is er líka frekar líflaus nema sama, pólitík og trúmál. torg.is er síðan ömurlegur spjallvefur vegna þess að það eru engin notendanöfn og enginn veit hver skrifar hvað.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok