Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

lhg
lhg Notandi frá fornöld 230 stig

Re: Bráðgáfuð Börn

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér finnst að ef einhver er búinn með skyldunámið 11 ára gamall, þá ætti hann ekki að vera skólaskyldur lengur og hvað foreldrar hans vilja láta hann gera er bara þeirra mál. Hins vegar eru líka til ýmsir sjóðir sem veita styrki til náms. Það er líka spurning hvað á krakkinn að læra? Eru líkur á því að eitthvað sem þú ákveður að læra 11 ára gamall sé eitthvað sem þú kemur til með að vinna við í framtíðinni? Er eitthvað gaman fyrir einhvern sem er 11 ára að vera í háskóla með eintómu...

Re: Klukkan?

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þú telur ekki 5 með vegna þess að kl. er þegar orðin 5. Þegar klukkan er 5, þá er einn klukkutími í að hún verði 6, 2 þar til hún verður 7, 3 þar til hún verður 8 og 4 þar til hún verður 9. Þess vegna telur þú 6,7,8,9 = 4 tímar.

Re: óboðinn gestur...

í Kettir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Er ólin hans merkt? Ef ekki, þá geturðu látið miða á hana og beðið þann sem á köttinn að hringja í þig. Ég heyrði um fólk sem fannst kötturinn sinn vera orðinn ansi digur og lítið heima og settu miða á ólina hans að allir sem gæfu honum að éta ættu að hringja og það hringdi fullt af fólki :)

Re: Tea Tree Oil

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það er líka hægt að fá hreina tea tree olíu en lyktin minnir mig helst á tekkolíu sem foreldrar mínir notuðu á stofuskápinn heima meðan hann var ennþá til staðar. Olían ku vera græðandi, sótthreinsandi og eitthvað fleira en þurrkar húðina alveg rosalega.

Re: Einelti

í Skóli fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Humm, Karlamagnús á í fyrsta lagi að buffa foreldra sína fyrir að skíra sig svona asnalegu nafni. Hvað hann gerir næst veltur svolítið á hvernig fólin eru sem eru að gera honum lífið leitt. Hrekkjusvínin í mínum skóla elskuðu að fá viðbrögð. Þeir sem reyndu að berja, fóru að grenja, reyndu að kjafta sig út eða eitthvað voru hrekktir áfram. Hinir sem voru bara kurteisir og létu hrekkja sig án þess að láta það neitt á sig fá voru ekki hrekktir áfram. Þetta gerði ég og þótti öllum mjög...

Re: Frjálshyggja

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Bandaríkin eru með medicare en það er bara fyrir fatlaða og öryrkja. Svo virkar það líka þannig að medicare borgar lækninum eitthvað ákveðið fyrir að annast þig og ekkert allir læknar sem vilja gangast inná þá upphæð þannig að þú færð kannski ekki besta lækninn ef þú ert í því kerfi. Sjúkratryggingar eru síðan rándýrar. Oft er fólk tryggt í gegnum vinnuveitanda sinn en ef þú ert í láglaunavinnu er oft ekki boðið upp á það eða ef þú ert að vinna sem verktaki og fólk er því oft ekkert tryggt....

Re: Símaáreiti

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þú gætir skipt um símanúmer eða gætir fengið þér síma þar sem þú getur stillt hringingar eftir því hver hringir og sett hana á silent. Hins vegar myndi ég prófa að segja við hana beint að þú viljir ekki að hún sé að hringja í þig og segja henni að hætta því. Næst þegar hún hringir þá segir þú: “Ég bað þig að hætta að hringja” og skellir svo á. Ef hún hefur aldrei hótað þér, þá kemur hún ábyggilega ekki og lemur þig þó þú viljir ekki tala við hana. Ef þetta er ekki að virka, þá geturðu sagt...

Re: sinaskeiðabólga!

í Tilveran fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hvað ertu að spyrja okkur? Prófaðu frekar að spyrja lækni.

Re: Frjálshyggja

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég hef aldrei fattað almennilega hvernig þetta ávísanakerfi með skóla ætti að virka. Segjum að sveitarfélag eyði 100 þús. kr. á ári á hvern grunnskólanema. Það ákveður að það muni senda fólki ávísun fyrir 100 þús. kr. og það geti síðan ákveðið hvort það notar hana til að greiða fyrir almennan skóla eða uppí einkaskóla sem er væntanlega dýrari. Þá er samt til fólk sem hefur ekki efni á að borga aukalega fyrir einkaskólann. Ef sveitarfélagið færi að senda öllum ávísanir sem dygðu fyrir...

Re: Óskemmtileg reynsla

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Í sambandi við skaðabætur, þá hefur löggan sáralítinn áhuga á að eltast við einhverja sem skemma eitthvað. Maður sem ég þekki hafði lent í því að hann var að bíða á rauðu ljósi beint fyrir utan löggustöðina á Hverfisgötunni þegar maður hreinlega labbar yfir bílinn hans og inn á stöð. Hann var smá tíma að ná hvað hefði gerst en lagði bílnum svo og fór inn á stöð og sagði þeim hvað hafði gerst. Löggan sem var á vakt sagði við hann “Já, þetta er ógæfumaður. Þú færð aldrei neitt út úr þessu.”...

Re: 13 daga kúrinn

í Heilsa fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Engir kúrar virka. Ef vigtin þín er eitthvað að kvarta þá eru hér nokkuð ráð sem virka rosalega vel: 1. drekktu a.m.k. 2 lítra af vatni á dag 2. hættu alveg að borða nammi, drekka gos og borða sykur 3. borðaðu hollan mat og reyndu að forðast fitu og salt 4. fyrir hvern klukkutíma sem þú situr yfir imbanum eða netinu skaltu hreyfa þig í hálftíma Gangi þér svo vel :) p.s. ég fer ekki eftir þessu sjálfur en ég ætti að gera það ;)

Re: Ljót hundaleikföng!

í Hundar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Hundurinn minn lék sér líklega mest með skoppiboltann sinn og hann var nú ekkert ljótur :) Hins vegar átti bróðir minn tík og hún átti “hvolp”. Þetta var lítill tuskuhundur sem var búið að tuska svo illilega til að það vantaði á hann eina löpp og eitt auga en Ester elskaði hvolpinn sinn og hvert sem Ester fór kom hvolpurinn með :) Síðan átti frænka mín hund og hann átti kött. Þau bjuggu í sveit og átti nokkra hlöðuketti og einn köttinn hafði hundurinn alið upp við það að hann tók í...

Re: óboðinn gestur...

í Kettir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég þekkti par sem bjó á Laufásveginum og þótti stelpunni voðalega sniðugt að hafa gluggana uppá gátt og bjóða köttum í heimsókn sem komu margir og voru stundum í nokkra daga. Hins vegar endaði með því að það kom villiköttur inn og meig og skeit út um allt og hvæsti bara á þau þegar þau ætluðu að reka hann út. Ég bjó síðan á Grettisgötunni í nokkur ár og lenti einu sinni í að finna týndan kettling inní geymslu sem var inni af þvottahúsinu og svo var einn köttur sem bjó í götunni sem stundaði...

Re: Landsbyggðin?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
“Ef styrkir til bænda hætta, þá hækkar auðvitað verð á matvöru, bændur fara kannski að taka 600-700 kr á kílóið, svo koma sláturhúsin og skella 1000-1400 kr á þetta, þá taka dreifingaraðilarnir við og smella einhverjum 50% á þetta og loks koma verslanirnar sem smella öðrum 50% á þetta, svo spilar margt inn í þetta, ég geri ráð fyrir því að það væri nú gott að borga 4000 kr fyrir pakka af hakki frekar en 500 kr, jamm þú hefur sannfært mig það er sko miklu betra að taka alla styrki af bændum.”...

Re: óboðinn gestur...

í Kettir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ef þú ert með opið hús þá er ekkert skrítið að þeir kíki í heimsókn :)

Re: Hefur þínum síma verið stolið?

í Farsímar fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Mér finnst líklegra að þeir hafi bara keypt ódýran búnað og svo fattað eftirá að hann býður ekki uppá þetta. Fyrirspurn minni varðandi þetta var svarað þannig frá Tal: “Það er ekki hægt að læsa símanum með IMEI númerinu, en það er hægt að leita að honum með því, þú kemur bara niðrí Síðumúla 28 og skrifar undir leitarbeiðnina.” Sem sagt, það er *ekki hægt*, hvað sem það svo þýðir. Ég var reyndar búinn að heyra þetta áður, einmitt frá manni sem hafði verið stolið af síma og var að fara milli...

Re: Óskemmtileg reynsla

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þegar ég bjó í miðbænum, þá var ég hreinlega farinn að sofa af mér svona slagsmál og læti. Fyrst þegar ég flutti þangað vaknaði ég alltaf við þetta, eitt skiptið var einhver kona að garga á einhvern mann að láta sig í friði og ég hugsaði . o O ( ó, aumingja manneskjan, ég ætti líklega að kíkja út og gá hvað er á seyði… zzzzzz ) og vaknaði svo næsta morgun með rosa samviskubit yfir hvað hefði verið í gangi þarna. Svo var mig bara farið að dreyma slagsmál og á endanum voru allir hættir að...

Re: hatur nýbúa á konum, hér á íslandi

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Það sagði mér líka nágranni minn sem var 65 ára gamall að honum bauðst að fá filipeyska konu ef hann borgaði flugmiðann fyrir hana og léti hana hafa 30 þús. til að kaupa föt. Hún var 30-35 ára og átti systur á Íslandi sem var líka gift eldri manni. Fyrir sumar af þessum konum virðist það að gifta sig bara vera eins og farmiði út úr landinu og ef kallinn er næs geta þær verið með honum áfram en ef hann er ömurlegur geta þær skilið við hann þegar þær eru komnar með ríkisborgararétt. Mér finnst...

Re: Óskemmtileg reynsla

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ef þú heldur að einhver sem þú þekkir droppi inn hjá þér kl. 4 að nóttu, þá hálfvorkenni ég þér að eiga svoleiðis ættingja en nóg um það :) Þá er hins vegar bara málið að kveikja ekki ljósin heldur læðast að hurðinni og kíkja út. Það er dimmara inni en úti þannig að hann sér illa inn en þú ættir að sjá út hver stendur við dyrnar. Svo ættirðu náttúrulega endilega að hringja í góðu löggurnar sem komu til þín og tékka hvað þeir hafa fundið út. Alltaf að taka niður nöfn á góðum löggum svo þú...

Re: Hvar?

í Hugi fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þú getur fengið litaðar filmur sem virka alla vega eins og spegill ef sólin skín á þær eða við vissar aðstæður. Hins vegar veit ég ekki hvort þessir aðilar selja spegilfilmur. Tékkaðu á þessu á <a href="http://www.gulalinan.is/default.asp?k1=51176&kg1=1&a1=1-12-11-1&rn=118&se=4068127773180&r=5-6-11-10-1-2-14-3&sr=1&ho=1&sf=1&sm=2&ac=7">gulu línunni</a>. Fyrirtæki sem ég var að vinna hjá lét setja svona fyrir nokkum árum og mig minnir að það hafi verið frá Rekstrarvörum. Samt ekki viss. Þú...

Re: Óskemmtileg reynsla

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Áttu heima niðrí bæ? Ég átti heima niðrí bæ í nokkur ár og ég fór aldrei einu sinni að útidyrunum þó það væri hringt. Bara breiddi upp fyrir haus og fór aftur að sofa. Þetta kom samt ekki fyrir nema svona 1-2 á ári. Alla vega, fólk sem hringir dyrabjöllunni hjá þér kl. 4 að nóttu hefur ekkert gott í hyggju þó yfirleitt sé það nú bara að gera at. Þessi sem þú lentir í hefur hins vegar bara greinilega verið eitthvað ruglaður. Kannski haldið að hann ætti heima þarna eða eitthvað. Alla vega...

Re: Ég hef nokrar spurningar

í Bardagaíþróttir fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held að það fari alveg 100% eftir því hvar þú ert að æfa. Það eru klúbbar þar sem eru náungar sem eru bara að æfa til að geta farið niðrí bæ um helgar og barið mann og annan en það eru ekki allir svoleiðis sem betur fer. Þegar þú kemur inn sem byrjandi, alla vega ef þetta er sæmilega stór klúbbur, þá er slatti af öðrum byrjendum og þú getur haldið saman með þeim þar sem þið ættuð að vera að sama róli að taka gráður og svoleiðis.

Re: Landsbyggðin?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Glerhöll? Ég bý reyndar ekki í Perlunni, bara í venjulegri blokk. Ef fólk telur sig ekki hafa efni á að búa í Reykjavík, ekki einu sinni í verkamannabústöðum, þá getur það valið að búa frekar í Mosó, á Kjalarnesi (sem tilheyrir reyndar Reykjavík), á Akranesi, í Keflavík, Hveragerði o.s.frv. en allt eru þetta staðir sem eru ekki það langt í burtu að þú getir ekki sótt vinnu eða skóla til Reykjavíkur ef þú vilt. Ég sé heldur ekki hvað það skiptir máli hvað önnur lönd styrkja landbúnað sinn...

Re: Landsbyggðin?

í Deiglan fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Þó húsnæði yrði dýrara í Reykjavík, þá er það alla vega val hjá fólki hvort það vill búa þar. Það er hins vegar ekki val þegar skattpeningarnir okkar allra eru notaðir í að styrkja einhvern vonlausan taprekstur á landsbyggðinni og þá er ég ekkert frekar að tala um bændur heldur bara hin ýmsu ævintýri sem hafa komið og farið. Nú ef það er satt að bændur fái enga styrki heldur fari þeir allir í að niðurgreiða landbúnaðarvörur, má þá ekki bara hætta því? Ég sé ekki af hverju á eitthvað frekar...

Re: Nafnapælingar og skondnar vísur

í Húmor fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Ég held að það sé ekki á bannaða listanum samt. Kannski hefur bara enginn sótt um það síðan nefndin byrjaði. Það getur vel verið að það yrði leyft en ábyggilega ekki margir sem vilja skíra barnið sitt Þjóf. Þó greinilega einhverjir :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok