Þetta er ömurleg mynd og skömm við alla Harry Potter aðdáendur. Hvergi var tekið fram að þetta væri hans eigin skoðun og í raun sagt við ALLA Harry Potter aðdáendur. Já, ég móðgaðist, og já, mér finnst þetta vera mikið mál. Allir mega segja sína skoðun, bara endilega, en ég má líka vera ósammála og koma með mína skoðun á móti. En ef einhver segir að hlutirnir SÉU á einn hátt eða annan þá stoppa ég og bendi á að þannig sé það ekki.