Því miður tókst mér ekki að lesa öll svörin… en hér eru mínar hugsanir á málinu (og ég þekki fullt af fólki sem er í miðri þessari baráttu í Bandaríkjunum). Ég vil einnig byrja á að taka það fram að ég styð réttindi samkynhneigðra í öllu, sem og annarra minnihlutahópa. Endalaust er hægt að ræða um hvort samkynhneigð sé náttúruleg, eðlileg, réttlætanleg… og hvað sem er, sama hvort það er út frá læknisfræðilegu sjónarhorni, sálfræðilegu, félagsfræðilegu, heimspekilegu, trúarlegu eða eitthverju...