Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gong
gong Notandi frá fornöld 2.274 stig

Heilbrigð sál í .... líkama (5 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Á morgun, föstudaginn 10. okt. er alþjóðlegur geðheilbrigðisdagur. Hann er reyndar dagur allra, ekki bara þeirra sem hrjást af einhverjum geðrænum kvillum, líka dagur þeirra sem vilja gera eitthvað í því að sleppa án þeirra í gegnum lífið! Dagurinn er að þessu sinni tileinkaður börnum og unglingum með geðraskanir og það væri nú ekki slæmt ef Íslendingar gerðu eitthvað meira fyrir þessi ungmenni sín en nú er gert – ha! Þess má geta að Smáralind verður tveggja ára þennan dag en fyrir...

L e Ed S not United (19 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Sameinaðir stöndum vér, Sundraðir föllum vér. Föllum þó andskotann ekki neitt en mikið andskoti er þetta erfitt líf og sjálfstraustið rétt fyrir neðan frostmark. Maður hefur nú verið að kvarta yfir Venables en lífið er nú kannski ekki dans á rósum hjá kallinum og hann hefur væntanlega ekki alveg fattað hvað hann var að fara út í 8. júli í sumar þegar hann skrifaði undir samninginn, sem reyndar var ekki svo slæmur. Þess má nú geta að í klásúlu í samningnum segir að ef hann verði rekinn fái...

Stjóri á bæn - enda jólin (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Fór á Teamtalk í kvöld og það var ekki ein einasta ný grein frá því í gær, þannig að þar á bæ hafa menn bara slappað af yfir jólanammi og skrifa ekki baun um fótbolta, enda andsk… afskakið jól, ekkert að gerast í dag. Samt haugur á morgun. Varð bara að skrifa litla grein því mér finnst þessi mynd alveg súper, svona á jólunum en Sam Allardyce biður til almættisins að hlutirnir fari nú að breytast hjá sínum Boltonköllum. Hann nefnilega er að biðja um að Michael Ricketts komist í stuð en hann...

Hangikjet og fótboltagæjar (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Tek það fram að ég var á Teamtalk þar sem þeir pæla og pæla og pæla og pæla, meira segja yfir jólin. Annars langar mig að byrja þessa litlu ritgerð á að fara yfir forsíðu huga, punkts og is rétt fyrir kl. 18 á aðfangadag. Þar eru 12 stykki greinar og þær heita aldeilis svipuðum nöfnum sem eru: Gleðileg jól, Höf. Brnson – undir Grafík Gleðileg jól, Höf. Hress- undir símadeild Gleðileg jól, Höf. Dawg – undir Eve Áskorun, jólin eru tími eyðsluseggja, Höf. Wbdaz – undir Champ. Manager Gleðileg...

Allt Dudek að kenna (24 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Allt Dudek að kenna, segir Houllier. Hann var að tjá sig eitthvað og þeir á teamtalk hafa eftir honum að frammistaða Liverpool hafi gjörbreyst til hins verra eftir afdrifarík mistök hjá Dudek á móti Middlesbrough þann 9. nóv þar sem Gareth Southgate fékk að skora sigurmarkið. Síðan hafa Púllarar aðeins fengið eitt stig í fimm leikjum og komnir í fjórða sæti eftir að hafa leitt í deildinni. Houllier segir: “Akkúrat þegar við máttum ekki tapa þá gerist eitt atvik sem sem gerbyltir öllu (það er...

Fer Shearer aftur í landsliðstreyjuna? (13 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Aðstoðarmaður Sven Görans, hann Tord Grip, hefur gefið það í skyn að hugsanlega muni Svenni reyna að dobla Shearer aftur í landsliðið. Shearer hefur verið í feiknaformi að undanförnu, hleypur um eins og veðhlaupahestur og skorað sallafín mörk. Shearer hætti að gefa kost á sér í landsliðið eftir Evrópukeppnina 2000 til að einbeita sér að ferli sínum hjá Newcastle en margir hafa rétt upp hönd að undanförnu og beðið um hann í liðið að nýju. Grip segir við News of the World að hugsanlega verði...

Salma Hayek sló út þær Madonnu og J.Lo (2 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þessi grein er tekin af kistan.is og ég tek það fram að ég hef fengið leyfi frá höfundi til að setja hana hér á huga. Salma Hayek rúllar yfir Madonnu og Jennifer Lopez - á hjólastólnum Arnar Valgeirsson Væntanleg kvikmynd um ævi Fridu Kahlo. Til að ná sínu fram mátti Salma Hayek brjóta Jennifer Lopez á bak aftur og berjast gegn Madonnu, vel studdri af Marlon Brando. En henni tókst það og hefur nú fært söguna af átakanlegu lífi mexíkönsku listakonunnar, Fridu Kahlo - sem orðið hefur...

Skorað - utan vallar 3 (9 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Sol Campell féll flatur fyrir fasteignasalanum sínum. Þessi stóri og stæðilegi piltur hefur átt í ástarsambandi við hina smávöxnu Theresu Lartey í nokkra mánuði. Þess má geta að stúlkan er bara fremur myndarleg. Vinur hann Campbells segir hann ekki mikið fyrir að tala um konurnar í sínu lífi en greinilegt sé að hún Theresa hafi allveruleg áhrif á pilt, því þegar hann er ekki með henni þá sé hann í símasambandi við stúlkukindina. Ljósmyndarar sitja nú fyrir hjónaleysunum fyrir utan 3ja...

Verslun og viðskipti (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Pælingar um leikmannakaup og sölur eftir áramót; Vitað er að Newcastle er á eftir kantmanni Real Sociedad, spánska landsliðsmanninum Javier De Pedro og haft eftir spænska knattspynublaðinu As að Ronnie Rosenthal, gamli rebbi úr enska boltanum sem ég man ekki hvaðan er, sennilega bara Israel og er orðinn umboðsmaður, sé að vinna í málinu. De Pedro tekur eitraðar aukaspyrnur og Robson gamli vill hann í liðið. Fulham er á eftir miðjumanni Espanyol, Angel Morales og Bild Zeitung hið þýska hefur...

Owen Gaddafi (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hinn brjálaði fótboltafan og sonur Colonel Gaddafi´s, Líbíuleiðtoga, vill ganga til liðs við Liverpool. Drengurinn, El-Saadi Gadaffi á nú þegar 7,5% í Juventus í gegnum fyrirtæki sitt, Lafico. Hann er nú líka að rembast við að fá Heimsmeistarakeppnina 2010 til Líbíu og hefur haldið fundi og ráðstefnur með mætum mönnum vegna þess, en Afríka þykir nokkuð líkleg. Þó er Suður-Afríka talin líklegri, enn sem komið er. Hann viðurkennir alveg að England heillar og helst vill hann Liverpool og hefur...

Steindauðir Man júnætid fanar... (13 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Eitthvað voru þeir á Sýn að tala um það um daginn að það væri óvenju lágt hljóðið í stuðningsmönnum Man Utd á Old Trafford því það væri svo ofboðslega mikið af ferðamönnum alltaf á vellinum sem kynnu ekki á alvöru enska stemningu. Það er þó ekki eina skýringin því farið var að kanna allt liðið sem ætti ársmiða ár eftir ár – því þeir hafa forgang á svoleiðis sem eitt sinn hafa á annað borð keypt. Kom í ljós að 1800, þ.e. eittþúsundogáttahundruð ársmiðaeigendur eru einfaldlega látnir. Já,...

einn og tveir og þrír - og fjórir (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Jamenn, mínir menn bara í stuði. Þrátt fyrir að Mills væri heima, af persónulegum ástæðum, Viduka á fæðingardeildinni, Woodgate og Matteo meiddir, sem og reyndar fleiri, þá bara rúlluðu Leedsarar yfir Hapoel. Þess ber þó að geta að þeir voru ekki beinlíniss á heimavelli, leikurinn í Flórens vegna ástandsins í Ísrael. Venables taldi best að fara rólega í sakirnar og reyna að halda 1-0 sigrinum heima og var bara með einn mann frammi, hann Alan Smith. Sem sagði bara ekkert mál – og setti fjögur...

gimsteinar geymdir í útlöndum (14 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Englendingar eru með ströng lög um innflytjendur og fótboltamenn þar sko aldeilis ekki undanskildir. Eins og flestir vita hafa hinir og þessir ekki fengið heimild til að spila með enskum liðum og ungir leikmenn með litla landsliðsreynslu komast bara ekki til Englands. Nokkur lið hafa þó fundið krókaleiðir, ekki ólöglegar en samt umdeildar, til að “eignast” efnilega pilta. Arsenal og Manchester United geyma bara óslípuðu gimsteinana sína í Belgíu og þar lúra nokkrir snillar þangað til þeir...

einn kemur þá annar fer - eða þannig sko (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Miklar spekúlasjónir eru á Ítalíu um breytingar hjá hinum ýmsu liðum á næstunni og þeir hjá Corriere dello Sport vilja meina að Christian Vieri fari frá Inter til Juventus og Michael Owen komi í staðinn. Olivier Dacourt fari til Juventus og Leeds fái þá hinn franska varnarmann Barcelona Philippe Christanval sem sagði í viðtali við hið franska L´Equipe að það yrði lánssamningur sem gæti þróast í kaup en reyndar eru Newcastle eitthvað að blanda sér í það mál. Þá muni Mikael Silvestre fara til...

Skorað - utan vallar 2. (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Ég á kærasta sem er atvinnumaður í fótbolta og glænýjan sportbíl, en er bara ánægð að búa hjá mömmu og pabba því ég er bara 17” segir Sammy Winward, stjarna í sápuóperunni Emmerdale sem er voða, voða vinsæl í Bretlandi. Þó að hún hafi ekki fengið bílprófið ennþá er hún með lyklana af glænýjum og glansansdi bláum Rover MGZR í hendinni og brosir sætt framan í ljósmyndara Sunday Mirror, hann Nicky Johnson. Þetta er nýja kærastan hans David´s Dunn, hins sparkvissa Blackburnpeyja. “Ég var á...

Tjallinn á barmi taugaáfalls. (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það hefur ýmislegt gengið á hjá honum Sven Göran Erikson að undanförnu. Maðurinn sem fékk hann í djobbið, Adam Crouzier er hættur og alveg að fara og Steve McClaren ætlar að snúa sér alfarið að Middlesbrough. Nú hefur kallinn eitthvað verið bendlaður við landslið Ítalíu, enda Trappatoni orðinn fullvaltur í sessi og ítalir öskra á breytingu. Ítalska knattspyrnusambandið segist engu að síður standa þétt að baki honum, sem hefur nú reyndar yfirleitt þýtt að hann verði bráðum rekinn, svona þegar...

no. eitt eða tvö eða þrjú? (13 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þegar Seaman kallinn hélt að bömmer væri að baki, koma þjóðverjar og setja salt í sár. Þeir hjá Puma buðu Paul Robinson þennan fína markmannshanska samning og stóla greinilega á að hann taki við í enska markinu, fyrr en seinna. Piltur fékk 750 þús pund fyrir og gæti fengið meira en milljón í viðbót – ef hann spilar mikið og stendur sig vel. Þeim finnst greinilega ekki að Seaman sé góður kandídat fyrir hanska sína, en hann hefur verið með samning hjá þeim um langt skeið. Robinson hefur verið...

bók og mannrán hjá Beckham familíunni (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ekki eitt orð hefur verið skrifað en samt hefur David Beckham fengið þrjár og hálfa milljón punda í vasann fyrir ævisögu sína. Útgefandinn er ekki í vafa um að þetta verði þvílíkur “bestseller” vegna þeirrar athygli sem Beckham nýtur, bæði innan vallar og (þó aðallega) utan. Sá sem plataði Beckham í þetta hefur að vísu lent í smá krísu því það vill svo til að spúsa David´s, hún Victoria, ætlar sér að hafa eitthvað um málið að segja og harðneitar öllum hugmyndum um þann sem skrifa á verkið...

skorað - utan vallar 1 (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ashley Cole lítur mikið upp til landsliðsþjálfara síns og vill vera eins og hann. Hinn 21. árs Arsenal gæi hefur að undanförnu átt í heitu ástarsambandi við hina þokkafullu súludansmey, Michaelu Carey sem segir að þó hún viti vel að hann eigi kærustu sé hún engu að síður orðin ofsa ástfangin af pilti! Hann skildi víst kærustuna til margra ára, hana Emmu, eftir á varamannabekknum er hann réðst til atlögu á Michaelu og tæklaði hana svo að hún segist aldrei hafa upplifað aðrar eins nætur!...

Heskey fær skeyti og Ginola skæri (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Allan Clarke sem var striker hjá enska landsliðinu í 19 leikjum milli 1970 og ´76 er ekkert yfir sig hrifinn af Emile Heskey. Clarke segir að fyrir nokkrum arum hafi verið umtalað hvað Englendingar ættu mikið af efnilegum framherjum “ en hvað varð eiginlega um þá?” “Owen hefur nú heldur betur tekið sig á eftir lélega byrjun en samt er enginn sem svo mikið sem ógnar stöðu hans í liðinu”. Clarke vill fá Alan Smith með Owen í framlínuna, hann sé hörkuduglegur sem geri alltaf sitt besta en hafi...

McClaren hættur hjá landsliðinu - Sven ekki (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég var að sjá á Teamtalk að Steve McClaren hefði hætt sem aðstoðarmaður Sven Göran Erikson hjá enska landsliðinu. Sagði að þetta væri alfarið sín eigin ákvörðun og hefði ekkert með brotthvarf Adam Crouzier að gera. Sven Göran þakkaði Steve hans framlag og sagðist ekki glaður með þessar fréttir en virti ákvörðunina. Sagði við sama tækifæri að hann myndi halda áfram með landsliðið í bili, þó hann hefði sagt að hann myndi væntanlega hætta ef Crozier færi. “Þetta voru ótrúleg vonbrigði og við...

hroðalegar markmannsraunir (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ef þið haldið að David Seaman hafi átt erfitt milli stanganna að undanförnu ættuð þið að hugsa til hans James Leggaat. Eftir leik í Mansfileld um daginn ætlaði hann að ná moldinni af takkaskónum með því að sparka aðeins pínkupons í stöngina og steinrotaðist umsvifalaust þegar þversláin datt ofan á hausinn á honum. Já, það er sko ekki hættulaust að vera markmaður og það fékk nú einnig að reyna hann Bernie Marsh, markmaður hjá varaliði Balcombe sem ætlaði að reyna að ná bolta sem var á leið...

Klikkaðir varnartilburðir - brasilískir og enskir (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Lið sem vilja styrkja vörnina ættu að líta til Brasilíu. Framherji Botafogo, hann Fabio negldi þessu svaka skoti þrem mínútum fyrir leikslok, á móti Gremio, sem var á leið í markið þegar fljúgandi bíbí varð fyrir skotinu og boltinn fór framhjá (þessi bíbí heitir lapwing á ensku og Vanellus ranellus á latínu og er stór og mikill og skrækir hátt). Fabío var eyðilagður maður og sagði: “ef helvítis fuglinn hefði ekki verið að þvælast þarna hefði ég skorað sigurmarkið”. Þess má geta að leikurinn...

Stungið upp í arfafúlan stjóra (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Howard Wilkinson, nýráðinn stjóri hjá Sunderland, hefur átt fremur erfitt með samskipti sín við blaðamenn. Eitt sinn, er hann stjórnaði Sheffield Wednesday, var hann hundfúll á blaðamannafundi eftir slæmt tap og þurfti að svara grimmum athugasemdum fjölmiðlafólks. Kallinn umturnaðist og öskraði: “hvað þykist þið vera? Hvurn andskotann þykist þið vita um fótbolta? Hafið þið unnið einhverja leiki – ha? Það mætti halda að þið ættuð að stjórna landsliðinu, hafið þið unnið einhverja landsleiki,...

viðtal - O´Leary fyrir rétti en til í slaginn (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég hef fengið tilboð – góð tilboð erlendis frá en ég vil stjórna liði í úrvalsdeildinni og BARA í úrvalsdeild. Hér kemur útdráttur úr tveggja vikna gömlu viðtali við David O´Leary, fyrrum stjóra Leeds Utd. Nota bene, tveggja vikna gamalt en bein þýðing; David O´Leary hafnaði einu tilboðinu enn í vikunni. Frá Rússlandi. Tilboð frá Ítalíu, Japan og Austurlöndum fjær hafa borist að undanförnu en kurteislega verið hafnað. Fremur en snæða með mér morgunmat í London á fimmtudaginn hefði hann getað...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok