Skorað - utan vallar 3 Sol Campell féll flatur fyrir fasteignasalanum sínum.
Þessi stóri og stæðilegi piltur hefur átt í ástarsambandi við hina smávöxnu Theresu Lartey í nokkra mánuði. Þess má geta að stúlkan er bara fremur myndarleg.
Vinur hann Campbells segir hann ekki mikið fyrir að tala um konurnar í sínu lífi en greinilegt sé að hún Theresa hafi allveruleg áhrif á pilt, því þegar hann er ekki með henni þá sé hann í símasambandi við stúlkukindina.
Ljósmyndarar sitja nú fyrir hjónaleysunum fyrir utan 3ja milljón punda heimili kappans, endurtek 3ja milljón punda heimili kappans, til að festa þau á filmu, greyin.
Theresa er væntanlega sátt, er með 40 þúsund pund pund á ári í laun en Campbell með eitthvað nálægt 100 þúsund pundum – á viku.
Þá er drengurinn 3 daga að vinna sér inn árslaun fasteignasala, takk fyrir.
Sjitt að hafa ekki lagt sig betur fram í boltanum. Sjitt sjitt sjitt.