Já, þetta er alveg rétt, „Þetta er náttla bara BULL.“ Brennivínsflaskan kostar nefnilega miklu meira en þessi 5.8% framleiðandans. Hún kostar nokkur dauðsföll á ári ennfleirri örkumlast, hún kostar eignaspjöll, forföll frá vinnu, aukinn rekstrarkostnað meðferðaheimila, fangelsa, lögreglu og dómstóla. Þetta er bara sá kostnaður sem meta má til fjár. Fyrir utan þetta kostar brennivínsflaskan ómældar þjánigar fólks sem annaðhvort gerir eitthvað af sér í ölæði eða skaðast vegna áfengisdrykkju....