Það er vissulega rétt að Pétur mikli lét byggja borgina. En þó að Pétur hafi verið mikilsmetinn maður, þá hefur hann ekki verið tekinn í dýrlingatölu. Borgin hét í upphafi Sankt Peterburg, þ.e.a.s. borg heilags Péturs. Eftir valdatöku kommúnista var nafni borgarinnar breytt, fyrst í Petrograd og síðan í Leningrad, til heiðurs V.I. Lenin. Eftir fall Sovétríkjanna fékk borgin aftur sitt forna nafn, Sankt Peterburg, borg Péturs Postula. Það hefur þó ábyggilega ekki þótt verra að þeir skul hafa...