Jú, þetta var svona þér að segja icez, mjög merkileg sjón og nokkuð sem seint gleymist. Þetta minnir mig samt alltaf á það þegar ég fór á miðilsfund í Garðabænum, sem er eins og allir vita svitastorkinn handarkriki alheimsins, en þar var kona sem sagðist hafa étið eiginmann sinn og vildi nú ná sambandi við hann. Ekki spyrja mig hvernig, en viti menn þarna birtist þessi öðlingur svo við sáum öll og þetta var sannkristin kona ef frá eru taldar þessar fáu Tælandsferðir hennar.