Færist nær núinu
og fortíðin aðeins seiðingur
minningarnar sárið sem grær svo hægt
réttlæting verkana plástruð yfir
svo ekki komi ígerð í minningaróm.

Sái efafræjum
yfir akur huga míns og horfi
á vöxtin skemma samviskuna
og kæfa
hvert einasta hamingjublóm.
—–