Með þessari grein er ég að spurja spurningar sem og deila einhverju sem mér finnst erfitt að tala um svo þið kannski fyrirgefið ef ég byrja að rugla einhverja þvælu!

Hugmyndin er sprottin frá því að ég komst nýverið að því að annar bróðir minn er skyggn eða næmur eða hverju sem fólk vill kalla það! (Ég skrifaði fyrir svolitlu síðan um að kærasta bróðir míns framdi sjálfsmorð og vil taka fram að þetta er ekki sami bróðirinn! Sá er 8 árum eldri en ég, þessi einungis 2!)

Ég komst að því í gegnum vinkonu mína! Hún og bróðir minn eru í sama “kunningjahóp” og hún hefur verið hjá honum þegar hann hefur séð eða skynjað ýmsa hluti! Ég hafði samband við einn besta vin hans sem hefur verið hjá honum þegar það stærsta hefur gerst og hann sagði mér að bróðir minn væri ein sú sterkasta manneskja sem hann hefði hitt og að ég gæti t.d. fundið á mér hvernig fólki líður, hvað það hugsar, án þess að átta mig á því! Það gæti verið rétt en hvernig á ég að vita!? Ef ég átta mig ekki á því hvernig get ég þá vitað fyrir víst að ég geti það!?

Bróðir minn vissi held ég ekkert af þessu fyrr en núna fyrr á árinu. Hann var staddur í partýi hjá vini sínum og var orðinn, að vinir hans héldu, drykkjudauður! Einn vinur hans, sem er þónokkuð næmur en hvorki sér beint né heyrir, einmitt sá sem ég talaði við þegar ég frétti þetta, dró hann inn í herbergi og fór síðan aftur fram! Eftir svolítinn tíma fann vinurinn að hann “ætti” að fara aftur inn til hans! Hann gekk að bróðir mínum sem lá í rúminu, beygði sig að honum og spurði; „Er eitthvað að!?“ Bróðir minn svaraði strax; „Ég vil að fólkið fari!“ en opnaði hvorki augun né hreyfði sig! Vinur hans fann strax að þetta var ekki hann sjálfur, hvorki röddin né neitt annað og spurði; „Hverjir viltu að fari!?“ en bróðir minn svaraði engu öðru en „ég vil að fólkið fari!” eða „ég vil að lætin hætti!”. Vinur hans var orðinn svolítið smeykur og spurði síðan; „Er þér kalt einhversstaðar?” Bróðir minn kinnkaði kolli! „Hvar!?” spurði vinurinn! „Á eyranu þar sem hann hvíslar að mér!“ svaraði bróðir minn! Þá skildi vinur hans að þetta var örugglega maðurinn sem að hafði átt heima í húsinu en framið sjálfsmorð þar fyrir ekki svo mörgum mánuðum síðan! Á einhvern hátt tókst vininum og vinkonu hans (sem er mjög skyggn) að “sætta” manninn eða eitthvað svo hann hætti að angra bróður minn! Og vinurinn er sem betur fer fluttur úr húsinu!

En á meðan að hann bjó þar gerðust fleiri svona hlutir! Bróðir minn og vinurinn sem talaði við “manninn” voru einu sinni bara inní herbergi með vinkonu minni (sem sagði mér frá þessu) og vinkonum hennar og voru eitthvað að dunda sér þegar bróðir minn sagði alltí einu við vininn; „Hann er að horfa á þig!“ og síðan ekkert meir um það! Vinurinn vissi samt vel um hvern hann talaði! Og það sama kvöld vissi bróðir minn á einhvern undarlegan hátt (sem ég er svo skíthrædd við) að ein af stelpunum ætti eftir að deyja ung! Hann gat ekki útskýrt hvernig hann vissi það, hann bara vissi það!!!

Þið takið þessu örugglega öllu með góðum vara, en ég vil segja ykkur að ég veit að bróðir minn færi aldrei að ljúga einhverju svona löguðu, sérstaklega þar sem það virðist sem að hann vilji alls ekki hafa þennan hæfileika! Hann hefur verið í þunglyndi og öllum andskotanum þónokkuð lengi og ég hef haft miklar áhyggjur af honum og það er í rauninni þess vegna sem ég skrifa þessa grein! Ég vil fá að vita hvort það er hugsanlega hægt að þjálfa þessa næmni upp í mér! Gæti ég hugsanlega haft það sem þarf til að verða, þó ekki væri nema bara örlítið næmari en ég er! Það er víst hægt að fara til einhvers og láta loka fyrir þetta í einhvern tíma, er kannski hægt að fara eitthvað og láta “opna” fyrir þetta!? Ég óska bara svo innilega að ég geti eitthvað, til að skilja hvernig honum líður, til að hjálpa honum, og… örugglega eitthvað af því að mig langar að finna fyrir því að það sé til eitthvað annað en það sem við sjáum og heyrum! Viljiði vera svo væn og svara mér af eða á!? Mig langar að hjálpa honum því ég held að innst inni sé hann hræddur við þetta! Hann hefur aldrei sagt neinum hversu mikið hann heyrir eða sér eða skynjar! Mig langar að skilja hann! (já við erum frekar náin systkini! Allaveganna þykjum við góðir vinir miðað við hvað við erum gömul!)

Þið afsakið ruglið í mér!
"