Hæ, ég verið að læra mikið um sálfarir eða svokallað (astral projection eða out of body experience). Sálfarir gerist hjá öllum sem sofa a.m.k. 1 sinni á nóttu. Fólk útskýrir þetta sem drauma því að þetta er mjög líkt draumum. Ég hef náð að fara úr líkamanum með fullri meðvitund, þ.e hægt líka. Síðan er til sálfarir með blöndu af draumum eða kallað lucid dreaming. Þegar ég fyrst komst að því að ég væri að fara úr líkamannum væri að ég vaknaði við að líkaminn væri dofinn eða lamaður og ég fann straum um allan líkamann. Þetta gerist þegar sálin er að undirbúa sig fyrir sálfrarir.

En spurningin er sú, af hverju sálfarir ? Ég get ekki svarað þessari spurningingu fullkomlega heldur get ég sagt að ef maður upplifir sálfarir með fullri meðvitund er hægt að fara hvert sem er og gera hvað sem er. Sem dæmi er hægt að fara á staði í fortíðinni s.s. klaustur þar sem miklir spekingar voru uppi og lært af þeim. Maður getur farið til tunglsins, mars, aðra heima eða aðrar víddir.

Ef þið viljið læra meira um sálfarir getið þið farið á heimasíðu www.mysticweb.org. Þar getið þið farið á námskeið og lært hvernig á að fara úr líkamanum með fullri meðvitund. Ég get sagt það að þetta námskeið virkar !!!.