Ekki það að ég hafi neitt á móti kristnu fólki eða sé ekki kristinn sjálfur þá er það bara staðreynd að kristnu fasistarnir í Bandaríkjunum eru á móti nokkurn veginn allri þróun í læknavísindum svo dæmi sé tekið. Að vísu þurfa þeir bara þeim mun meira að fylgjast með, þar hef ég kannski rangt fyrir mér.
Er nú kominn tími á að þú pakkir saman og leitir að nýjum birtingarvettvangi fyrir þetta crap þitt. Ha? Svona í alvöru þá er þetta bara að versna hjá þér.
Jú, þú ert bara snarklikkuð, hvað sem amma þín heitin hefur sagt þér þá er ekkert lið sem hangir í kringum þig. Ég man nú samt einu sinni að ég koma að manni sem var að koma út af slysadeildinni í Fossvogi, hann var allur grár og það var ekkert andlit á honum. Skiljiði þetta ekki? ÞAÐ VAR EKKERT ANDLIT. AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRRRRRRGGGGGGGGGGGGGGGGGGG. Og passið ykkur svo á öndunum. Sérstaklega þessum af lægri tilverustigunum.
Voðalega er farið að fara í taugarnar á mér þetta vemmisíulega orð kisa. Af hverju ekki köttur, högni eða læða, nei kisan er kettlingafull, ekki læðan. Ef læðan er kettlingafull en er samt breima, þá er hún líklega geðveik.
Þú segist halda að það sé allt í lagi með þig, það hljómar nú bara eins og þú sért í afneitun. Afneitun er jú eitt fyrsta merki þess að fólk sé að tapa því, reyna að sannfæra aðra um það sé allt í lagi með það og svo framvegis. Þú ættir að leita til læknis áður en þetta fer úr böndunum.
Ef miðað er við aðrar þjóðir sama menningarheims er engin sem stendur sig betur, og stæði enn betur ef ekki væri fyrir viðskiptabann USA því Kúba er auðugt land. Er fátækt á Kúbu almenn? Miðað við hvað? Ísland? Það er mun eitthvað vera til í því að menn sitji inni fyrir að vanvirða byltinguna á Kúbu, en hvar er viðskiptabannið á Kína sem gerir nákvæmlega það sama? Það ku jú eitthvað af peningum vera í spilinu þar. En Kúba sem er fátækt land og lítill markaður, hana má pína bara til þess að...
Sko… allt það sem þið hafið verið að skrifa er bull og vitleysa. Ég er hissa að læst og skrifandi fólk skuli geta haldið annarri eins hiemsku fram og að það séu til andar. Svona aðeins til að árétta það sem áður hefur komið fram þá…ANDAR ERU EKKI TIL, ÞEIR SEM HALDA ÖÐRU FRAM DÆMA SIG SJÁLFIR.
Ja, úr því þú dróst píslarvættisspilið og svo dauðaspilið þá muntu greinilega deyja píslarvættisdauða. Það er slæmt að við skulum ekki vera kaþólsk, því þú verður aldrei kanóniseruð. Ennfremur þá er öfga trúar maður skrifað öfgatrúarmaður og sögnin að dreyma er ópersónuleg. Megir þú eiga góðan dauðdaga.
Þessi andúð fólks á Kúbu er óskiljanleg. Fidel Castro er besti leiðtogi sem Mið-Ameríku ríki hefur fengið nokkurn tíma. Menntun og heilbrigðisþjónusta er betri á á Kúbu en í USA. Ef þú spyrð mann á Kúbu hvar Ísland sé þá eru meiri líkur að hann geti sagt þér það en Bandaríkjamaður. Félagsþjónustan á Kúbu er einnig mun þróaðri en í Bandaríkjunum þar sem þúsundir manna eldri borgarar og heimilislausir deyja árlega úr kulda og vosbúð eða þá úr hita í óloftkældum íbúðarholum í stórborgunum. Kúba...
Þess má til gamans geta að einu gagnlegu göngin, Hvalfjarðargöngin, voru ekki gerð fyrir skattpeninga heldur eru rekin af Speli h/f. Það er satt að peningunum væri betur varið hjá RÚV en í þessi göng um hvippinn og hvappinn sem eru bara til þess fallin að hjálpa fólki að flýja til Reykjavíkur.
Bara smá leiðrétting, landhelgin er 12 mílur, efnahags- eða fiskveiðilögsagan er 200 mílur. Það er þó nokkuð víst að Bretar og Spánverjar munu heimta veiðiheimildir hérna en við ættum að fá eitthvað í staðinn fyrir utan sæti á Evrópuþinginu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..