Stundum -
finnst mér ég vera
svo ómerkilegur.

Finnst sem tíminn standi í stað,
að ljósið hafi mér gleymt.
Að ég sé munaðarlaust barn
sem tunglið gleypti.

En svo kem ég til þín -
mín yndisfagra dúfa,
og þú gerir mig að manni.
Færð mig til að finnast ég vera
sem meistarinn sem allir dá;
kennarann sem allir vilja fá;
hetjuna sem allir vilja sjá!