ÉG var úti að labba eitt kvöldið í Esjunni með vini mínum, þegar ég sá tvo littla deppla í loftinu ég stoppuðum við og pældum í þþví hvað þetta væri. Depplarir hreyfðust um loftið á mikilli hreyfingu og erfitt var að fylgjast með þeim. Við hættum svo að pæla í því hvað þetta væri og héldum áfram að ganga.

En svo eftir svona 30 min þegar við höfðum náð upp á topp Esjunnar sáum við depplana aftur. Við pældum ekkert í því neitt meira og héldum niður Esjuna. Eftir smá stund 10 - 15 min þá datt ég og meiddi mig á hausnum en ég leit við og sá depplana koma nær og nær og þeir urðu stærri og stærri. En þá leið útaf við mig.

Þegar ég vaknaði náði ég ekki að sjá mjög vel, en náði nú samt að sjá að ég var í hvítu herbergi, ég hélt að ég væri á spítala en áttaði mig á því að ég væri ekki á spítala þegar ég sá aðgeim verurnar komu nálægt. Þær voru forljótar með langar fingur og langa fætur og þær voru nú bara frekar stórar en skömmu eftir það var eins og ég hafði verið svæfður. Þegar ég vaknaði aftur sá ég að ég væri í hvítu herbergi aftur og varð skíthræddur, þangað til að ég náði að vakna betur. Ég náði að reisa mig við og sá ég var í spítala en vildi ekki vera of viss, ég labbaði fram en sá þá vin minn og móður mína og systkin mitt fyrir utan ég sagði þeim söguna en þau sögðu að ég hafði bara rotast og enginn hafði tekið mig.

En ég get nú ekki verið of viss, var þetta draumur eða var þetta í alvöru? Það fundust engin merki á að það hafði verið gert neitt við mig en mér líður samt eins og að ég sé hraustari en áður, ég held að þetta hafði gerst í alvöru en er samt ekki viss.