Eftirfarandi er þýtt upp úr bók Raymond Bucklands, Practical Candleburning Rituals. Þar sem þetta er frekar langt ætla ég að senda þetta inn í nokkrum hlutum. Njótið vel!

Undirbúningur fyrir kertagaldra

Herbergi:
Hversu einföld sem athöfnin getur verið er allur undirbúningur mjög mikilvægur. Ef þú ætlar að kveikja á kertum skaltu fyrst ákveða hvar þú ætlar að hafa þau. Hafðu þau einhversstaðar þar sem engin truflun eða tilfæring mun eiga sér stað, því margar athafnanna geta tekið marga daga án þess að kertin séu færð á milli. Það ætti líka að vera staður þar sem lítil hætta er á að eldurinn breiðist út (eins og t.d. alls ekki nálægt gluggatjöldum!). Veldu hljóðlátt herbergi þar sem þú heyrir ekki í sjónvarpinu eða græjunum. Til dæmis aftast í húsinu, lengst frá götunni eða í íbúð langt frá umferðarhljóðum. Þú þarft herbergi þar sem þú þarft ekki að hafa áhyggjur af truflun. Kjallarar eða háaloft eru tilvalinn staður fyrir slíkt.

Næst verður fjallað um altarið…

Kveðja,
Divaa