Smash var allt í lagi þegar hann kom út en eldist illa að mínu mati. Nýrra efni frá þeim er því miður bara algjört vinsældarpopp eða með öðrum orðum crap. Ég hef ekki hlustað nóg á eldra efni frá þeim til að dæma það samt.
Bara að sleppa því að fara hina hefbundnu leið og gera í staðinn það sem þig langar sjálfum að gera. Flestir sem fara í skóla eru þar vegna þess að þeir telja sig tilneydda.
Flestir sem hafa prófað eitthvað ólöglegt vímuefni hafa byrjað á hassinu og ég held að það væri nokkuð skynsamlegt að lögleiða það því þá er þetta sama fólk ekki að fara til dópsalanna sem reyna alltaf að pranga sterkari og dýrari efnum upp á það.
1.Radiohead (Ekki spurning) rest ekki í sérstakri röð Nirvana Autechre NIN Bítlarnir Al Green Beck Sigur Rós Björk Bob Dylan Clash Creedence Clearwater Revival David Bowie Dire Straits Gomez Hendrix Massive Attack Nick Cave Pj Harvey Portishead U2 R.E.M. Aphex Twin Talking Heads Kraftwerk Úff ég gerði mér ekki grein fyrir hvað þetta er mikið þegar ég byrjaði. Ég gæti örugglega haldið áfram en ég held að ég sleppi því.
Einn fróðleiksmoli í viðbót. Þegar Kurt var krakki átti hann ímyndaðan vin sem fylgdi honum hvert sem er, vinurinn átti meira að segja sér sæti við matarborðið heima hjá honum. Gagnlausar upplýsingar frá kóng gagnlausra upplýsinga!!! axiom
der: Í fyrsta lagi þá sagði aldrei neitt á móti Bítlunum. Það var fyrsta tónlistin sem ég hlustaði á. En það sem ég var að benda á var það að Radiohead voru stanslaust að toura í tvö ár og tóku sér frí því þeir voru andlega búnir. Bítlarnir aftur á móti voru held ég ekki mikið á tónleikaferðalögum heldur notuðu sjónvarpið og risastóra íþróttaleikvanga í staðinn til að ná til fleiri hlustenda. Ég vill samt alls ekki að þú skiljir mig þannig að mér líki illa við Bítlanna ég set þá á sama stall...
Ég er nú mikill Bítla-aðdáandi en ég segi samt að Radiohead eru ekkert verri ef ekki betri. Ein aðalástæðan fyrir því að þeir gefa ekki út tvær plötur á ári er sú að það er miklu meiri kröfur fyrir tónleikaferðum nú en á tímum Bítlanna. Eftir OK Computer fóru þeir á tveggja ára “tour” og tóku sér síðan u.þ.b. hálfs árs frí þangað til þeir fóru í stúdío aftur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..