Í fyrsta lagi þá finnst mér ekki hægt að bera saman Kid A-Amnesiac plöturnar við OKC því að þeir breyttu það rosalega um stefnu þar. Ástæðan er víst sú að þeir urðu mjög þreyttir á gítarrokkinu sem allir voru að spila á þessum tíma og fóru að leita á önnur mið og fundu þar tónlistarmenn á borð við aphex twin, autechre, Miles Davis, Can og Charles Mingus og heilluðust það mikið að þeir ákváðu að fara að semja nýtt efni í líkingu við efni fyrrnefndra tónlistamanna. Útkoman var Kid A og...