Hér er ég í vinnunni og það er ekkert að gera svo hugurinn fer á flakk og ég er nokkurnvegin búinn að ákveða hvaða plötur ég ætla að kaupa mér á mándaginn en það er annaðhvort Daydream nation með Sonic youth eða Mellon Collie and the Infinite Sadness með Smashing pumpkins, ég hef ekkert heyrt af Daydream nation(ekki svo ég viti) og aðeins “hittarana” af hinni svo ég veit ekkert í raun hvor sé betri, svooo ég var að vona að þið sem hafið heyrt þær báðar almennilega getið sagt mér hvora ég ætti að kaupa fyrst því ég á ekki fyrir þeim báðum.