Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

andrivig
andrivig Notandi frá fornöld 39 ára karlmaður
416 stig
Kveðja,

Nýtt tímabil með öllu tilheyrandi! (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 15 árum
Sælir kæru formúluhugarar! Þá er komið að enn einu formúluárinu og tæpar þrjár vikur í fyrstu keppni ársins, sem er að venju haldin í Melbourne í Ástralíu. Framundan er spennandi tímabil þar sem forvitnilegt verður að sjá hvernig reglugerðabreytingarnar sem taka gildi í ár munu spila inn í áætlun liðanna. Þær verða þó ekkert ræddar hér. Í ár mun verða starfræktur spáleikur líkt og mörg undanfarin ár, en í nýjum höndum að þessu sinni þar sem Mendel og loevly hafa tekið að sér umsjón...

Athugið! Lesið vel! (0 álit)

í Golf fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Þetta er á fleygiferð um áhugamálin og hálfgjörð samstaða meðal stjórnenda að setja þetta á sín áhugamál svo hér kemur þetta. Takið bara mark á þessu: — Góðan daginn. Eins og mörg ykkar hafa tekið eftir þá átti sér stað skelfilegur atburður þegar notandinn jerico tók líf sitt fyrir skömmu. Jerico sendi inn kork á /rómantík um daginn þar sem hann var að létta af sér og segja frá sínum vandamálum. Mikið var um stafsetningarvillur hjá honum en hann var með lesblindu á háu stigi. Einnig kom það...

Tölur - Apríl 2008 (0 álit)

í Mótorsport fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Góðan daginn! Tölur aprílmánaðar eru eftirfarandi: Flettingar voru 6031, sem er fækkun frá því í mars (6487) og um 0,14% af heildinni. En þó flettingum hafi fækkað aðeins, hækkar /motorsport þó úr 92. sæti uppí 86. sæti sem eru ánægjulegar fréttir.

Tölur - Apríl 2008 (1 álit)

í Formúla 1 fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Sælir formúluhugarar! Samkvæmt mælingum fyrir aprílmánuð náðum við 2436 flettingum eða um 0,06% af heildinni, sem er fækkun frá því í mars um rúmlega 1000 stykki! Ekki alveg nógu gott… Þá féllum við úr sæti 108 niður í 122. sæti listans. Eitthvað verðum við að gera til að hífa formúluna aðeins betur upp. Sem fyrr eru allar greinar, þræðir og myndir (athuga samt myndareglur) vel þegnar :)

Tölur - Apríl 2008 (1 álit)

í Golf fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Jæja, eftir 4 ára hlé hér á /golf birtast loksins tölur um gengi áhugamálsins! Í aprílmánuði var /golf með 2008 flettingar, sem eru um 0,05% allra flettinga á hugi.is í apríl og skilaði áhugamálinu í 129. sæti hvað aðsókn (flettingar) varðar. Það má örugglega gera betur og vonandi glæðist umferðin aðeins eftir því sem líður á sumarið.

Nýr stjórnandi (0 álit)

í Golf fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Sælir golfhugarar. Mér hefur verið falin stjórnandastaða hér á /golf og mun ég aðallega sinna reglubundnu eftirliti, ef svo má að orði komast, þ.e. fylgjast með umræðum og öðru slíku. Einnig mun ég aðstoða núverandi stjórnendur við að samþykkja/hafna innsendu efni ef þess gerist þörf. Vona að allir hafi gott golfsumar framundan.

Tölur - Mars 2008 (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Þá eru marstölurnar komnar í hús og á milli mánaða hefur /formula1 stokkið upp um 24 sæti, eða úr 132. sæti upp í 108. sæti. Þetta eru vissulega góðar fréttir. Það er nokkuð ljóst að umferðin hér inni hefur tekið smá kipp við upphaf keppnistímabilsins, en það má gera betur. Myndir, greinar, þræðir og kannanir eru alltaf vel þegnar, en ég minni á reglur áhugamálsins varðandi myndir og greinaskrif. Flettingar á /formula1 í marsmánuði 2008 voru alls 3472, sem gera 0,08% af heildarflettingum á...

Tölur - Mars 2008 (0 álit)

í Mótorsport fyrir 15 árum, 11 mánuðum
Tölur marsmánaðar eru komnar í hús og eru svo hljóðandi: Í 92. sæti er /motorsport með 6487 flettingar, eða 0,15% af heildarflettingum hugi.is. Þetta er 413 flettingum færra heldur en í febrúarmánuði, auk þess að áhugamálið fellur um 2 sæti. Flettingahlutfall /motorsport var 0,17% í febrúarmánuði. Annars skipa efstu sæti marslistans: 1. forsida 2. hl 3. kynlif 4. hljodfaeri 5. blizzard

Stigatöflur, uppfærð liðatafla og fleira (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum
Þar sem fyrsta móti ársins er nú lokið hef ég sett upp stigatöflu yfir keppni ökuþóra hins vegar og bílsmiða annars vegar (hægra megin á áhugamálinu). Þar sem stigatöflurnar koma í staðinn fyrir bráðabirgðauppsetningu á ökuþórum tímabilsins sem og bílsmiðum, hef ég lokið við að uppfæra annan kubb þar sem hægt er að finna allar þær upplýsingar sem voru þar sem stigatöflurnar eru nú. Það er kubburinn „Um Formúlu 1" þar sem hægt er að sjá myndir af öllum keppnisbílum ársins og ökuþóra hvers...

Tölur - Febrúar 2008 (0 álit)

í Mótorsport fyrir 16 árum
Tölur febrúarmánaðar eru komnar í hús og eru svo hljóðandi: Í 90. sæti er /motorsport með 6900 flettingar, eða 0,17% af heildarflettingum hugi.is. Þó áhugamálið standi í stað á listanum sjálfum, hefur flettingum fækkað sem nemur 1165 flettingum. Þá var flettingahlutfall /motorsport einnig 0,17% í janúarmánuði, en heildarflettingum á hugi.is fækkaði talsvert í febrúar miðað við janúar. Annars skipa efstu sæti febrúarlistans: 1. forsida 2. hl 3. hljodfaeri 4. kynlif 5. ego

Tölur - Febrúar 2008 (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum
Þá eru febrúartölurnar komnar í hús og á milli mánaða fellur /formula1 um 8 sæti, eða úr 124. sæti niður í 132. sæti. Flettingar á /formula1 í febrúarmánuði 2008 voru alls 2580, sem gera 0,06% af heildarflettingum á hugi.is í febrúar. Janúar var með 3723 flettingar sem gerðu 0,08%, þannig að umferðin hefur dalað á milli mánaða. Ég vona að umferðin aukist hér inni þegar keppnistímabilið hefst formlega um næstu helgi, með ástralska kappakstrinum. Efstu sætin í febrúar skipa annars: 1. forsida...

Tölur - Janúar 2008 (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum, 1 mánuði
Jæja, þá eru komnar nýjar tölur fyrir janúarmánuð síðastliðinn! Þar situr /formula1 í 124. sæti með 3.723 flettingar, eða um 0,08% af heildarflettingum á hugi.is í janúarmánuði. Þess ber þó að geta að í fyrsta sæti situr forsíðan með yfirgnæfandi meirihluta flettinga :) Þar sem lítið er um að vera í formúluheiminum þessa stundina, er þessi litla virkni á /formula1 svo sem skiljanleg, en það er hægt að gera betur og sem fyrr eru greinar, þræðir og myndir alltaf velkomnar á áhugamálið.

Tölur - Janúar 2008 (0 álit)

í Mótorsport fyrir 16 árum, 1 mánuði
Þá hafa verið birtar tölur fyrir janúarmánuð sem leið. Þar situr /motorsport í 90. sæti með 8.065 flettingar, sem gera um 0,17% af heildarflettingum á hugi.is í janúar. Þess ber þó að geta að forsíðan situr í efsta sæti listans, með yfirgnæfandi meirihluta flettinga.

Keppnisdagatal, keppnislið og ökuþórar 2008 (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Ég hef nú lokið við að uppfæra keppnisdagatalið fyrir komandi keppnistímabil, þó eitthvað vanti enn uppá nákvæmar tímasetningar. Nokkrar breytingar eru á keppnisdagatalinu frá því í fyrra, keppnum fjölgar um eina og fyrsta næturkeppnin fer fram í ár. Þá eru komnir upp listar yfir keppnislið og ökuþóra í ár samkvæmt formula1.com.

Tölur 2007 (0 álit)

í Mótorsport fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Sælir mótorsporthugarar. Aðsókn að /motorsport árið 2007 var talsvert meiri en árið á undan, eða 97700 flettingar á móti 88738 árið 2006. Enn meiri vöxtur er frá 2005, þegar flettingarnar voru einungis 30072. Í fyrra voru heildarflettingarnar á /motorsport alls um 0,16% af heildarflettingum á hugi.is á síðasta ári. Síðustu þrír mánuðir hafa verið svona: Desember 2007 7367 flettingar (0,15%) Nóvember 2007 6500 flettingar (0,13%) Október 2007 7708 flettingar (0,17%) Aðsóknin hefur því verið...

Tölur 2007 (9 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum, 2 mánuðum
Sælir formúluhugarar! Í byrjun verð ég að biðjast afsökunar á því hversu lítið hefur verið gert af okkar stjórnenda hálfu síðan síðasta tímabil klárðist. Það mun vonandi verða breyting þar á núna á nýju ári. Nokkrar breytingar hafa orðið á stjórnendahópnum og stöndum við, ég og Aiwa, tveir eftir núna eins og er. Hvort frekari breytingar séu framundan í stjórnendahópnum kemur í ljós seinna. En eins og staðan er í dag, hef ég verið að fara í gegnum áhugamálið, uppfæra keppnisdagatalið smátt og...

Minni á spáleikinn, bónus rennur út á miðnætti!!! Keppnin á Monza (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Enn og aftur er komið að keppni í formúlu 1 og samhliða því önnur umferð í spáleiknum okkar. Þeir sem vilja tryggja sér bónusinn verða að skila inn fyrir miðnætti í kvöld, aðrir hafa frest fram að upphafi tímatökunnar á laugardaginn.

Istanbúl - Spáleikur!!! Bónusinn rennur úr á miðnætti! (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Þá er orðið stutt í næstu keppni í formúlunni, en hún fer fram í Istanbúl í Tyrklandi á sunnudaginn, ræsing kl. 12! Nú ríður á að næla sér í bónusinn í tíma til að halda sér í keppninni í spáleiknum, það munar um hvert stig!

Hungaroring - Bónus í spáleik rennur út á miðnætti í kvöld!!! (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Titillinn segir allt sem segja þarf :) Vilji menn tryggja sér bónusinn í spáleiknum, er um að gera að skila inn spá fyrir miðnætti í kvöld, 2. ágúst ;) Þá er hægt að eiga áhyggjulausa verslunarmannahelgi (ja, eða svo gott sem) :D

Nürburgring - Spáleikur - Bónus (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum, 8 mánuðum
Einföld skilaboð enn eina ferðina :) Þeir sem vilja tryggja sér bónusinn skili inn sínum spám fyrir miðnætti í kvöld. Það munar um minna að tryggja sér bónusinn og enn meiru að muna eftir því að taka þátt í hverri keppni. Annars er skilafrestur á spám fram að upphafi tímatökunnar á laugardaginn.

Spáleikur: Silverstone!!! Bónus fram að miðnætti í kvöld! (3 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Skilaboðin eru einföld, þeir sem vilja næla sér í bónusinn, skili inn spám fyrir miðnætti :) Annars er frestur fram að tímatöku á laugardaginn til að skila inn spám. Allar spár sem koma inn eftir að tímataka hefst, eru ógildar og þeim verður eytt.

Spáleikur: Magny-Cours!!! Bónus fram að miðnætti í kvöld! (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum, 9 mánuðum
Skilaboðin eru einföld, þeir sem vilja næla sér í bónusinn, skili inn spám fyrir miðnætti :) Annars er frestur fram að tímatöku á laugardaginn til að skila inn spám. Allar spár sem koma inn eftir að tímataka hefst, eru ógildar og þeim verður eytt.

Minni á spáleikinn!! Bónus rennur út á miðnætti!!! (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ég vil minna á spáleikinn, en skilafrestur á spám er fram til upphafs tímatökunnar á laugardaginn, en skilafrestur til að fá bónusinn er til miðnættis í kvöld! Það munar um minna og borgar sig að skila inn fyrir miðnætti í kvöld til að fá bónusinn og örugg 2 stig fyrir helgina.

Fróðleiksmolar og reglur spáleiksins (0 álit)

í Formúla 1 fyrir 17 árum
Búið er að koma upp tveimur nýjum kubbum hér á /formula1, en það eru fróðleiksmolakubbur og reglukubbur fyrir spáleikinn. Á fróðleiksmolakubbnum mun ýmis konar fróðleikur úr Formúlu 1 koma fram. Sá kubbur er reyndar enn í vinnslu og munu fleiri fróðleiksmolar bætast við þegar þeir berast. Ultravox er þakkað framlagið að þeim kubbi. Þá er kominn upp kubbur sem inniheldur reglur spáleiksins í ár. Allir þeir sem vilja taka þátt í spáleiknum eru hvattir til að skoða reglurnar sem fyrst. Vonandi...

Nýr stjórnandi (6 álit)

í Formúla 1 fyrir 17 árum
Sælir formúluhugarar. Ég hef nú bæst inn í stjórnendahópinn á /formula1 og mun aðstoða Aiwa, FusionLorus og Ultravox við að halda utan um þetta áhugamál.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok