Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Fimm fjórðu. (1 álit)

í Ljóð fyrir 11 árum, 3 mánuðum
Fimm fjórðu. Við förum yfir fjöll og firði, Við vegalausa flóttaleið. Hvert andartak er tímans byrði, Brýrnar brenna. Bar þá förumann að garði, Bar hann staf í höndum sér. Á okkur hann ákaft starði, Bogann að spenna. Henti frá sér skeyti hörðu, Henti gæti hvern sem er. Hæfði þig og batt við jörðu, Sárið stækkar. Refur er og einn á reiki, Tófa drepin fyrir sauð. Yrðlingarnir hungurveikir, Heima fækkar. Einn ég byrjun vetrar leit, Einn er ég sem eigra, lifi. Dofna spor í óðalsreit, Sólin lækkar.

Vetur (2 álit)

í Ljóð fyrir 11 árum, 5 mánuðum
Athugasemdir höfunds: Þetta er texti við lag sem ég er að taka upp og setja saman. Vetur Kveðjum, ylur fellur frá, Gult er gras og deyja strá Býr oss undir, myrkrið hylur, Gamlar vísur, munnur þylur Snúning eftir, koma skal, Þrengir inn að hverjum dal Athöfn minnkar, titrar fátt, Vindar skipta ört um átt Viðlag: Sumri hallar, Vetur kallar, Sumri hallar, Vetur kallar. Er hann kominn, klæðir jörð. Snævi þakin, frosin, hörð. Vellir, stilla stjörnubjart. Lengi líður loftið svart. Fátt um fæði,...

Silfur (0 álit)

í Ljóð fyrir 13 árum, 3 mánuðum
Vel mér þykir þér fyrir fara, silfurleita flóð til vallar, skjálfandi mun að skapi svara, með skerandi ýlfri er þú kallar. Silfurleita flóð til vallar. Þú öfundar alla og geysar þín reiði, silfurleita flóð yfir fjallasal, óvini þína ég þróttmikill veiði, þótt innst ég finn að ég eig'ekki val. Silfurleita flóð yfir fjallasal. Oss þú lætur aldrei á kyrru sitja, silfurleita flóð, þú ofar jörðu, Þú lætur mig og mína bræður vitja, Múgalýð og háttsetta, jafnhörðu. Silfurleita flóð, þú ofar jörðu.

Albert (6 álit)

í Smásögur fyrir 13 árum, 4 mánuðum
Þetta er smávægileg tilraun til þess að brjóta upp hið hefðbundna ljóðform og gera það afar óhefðbundið. Ég persónulega tel þetta einkar einkennilegt og skemmtilegt sagnaform en ég vona því að aðrir kunni að meta. Drengurinn drafaði þreyttur að sjá, „Ég er vaknaður, svangur og súr,“ „Klæddu þig“ svarað var í sömu andrá Við ætlum í stuttan bíltúr. Drengurinn hissa á móður sína starði, kyrr. Vanur var ristuðu brauði svona rétt í morgunsárið, „Við megum engan tíma missa þetta árið,“ Sagði...

Grandalausi Akureyringurinn (8 álit)

í Sorp fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Mér datt í hug að gera uppskrift að rugli fyrir ykkur ævintýragjörnu Íslendinga/sorpara. Stefnið ykkur í voða, komist lifandi af eða deyjið ella. Uppsetningin er ekki ósvipað því og þegar þið lesið mataruppskrift; auðvelt í notkun og þægilegt. Án frekari tafa (ef þú ert lengi að lesa) ætla ég að birta ruglið. Grandalausi Akureyringurinn Þú þarft: 16 þúsund og 500 krónur eða meira inn á banka, veski, ullarpeysu, ullarhúfu, ullarbrók (ekki nauðsynlegt), ódýrar buxur og hræódýra skó,...

Hugsýki (0 álit)

í Smásögur fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Já. Hér er mjög stutt tilraun í fornbókmenntastíl. Svitinn draup af enni Þríbrandings rétt eins og rakaþéttingin á blaktandi greinum í þykkri dalalæðunni. Einbeitingin gagnvart Ómari Kulfengna var þvílík að ekkert annað átti sér tilverurétt í hugsunum hans. Varir Ómars kipruðust í háðslegu og óttaslegnu brosi en slöknuðu um leið og hausinn var eigi lengur tengdur við hálsinn. Það söng í hör Þríbrandings, ekki ólíkt því þegar mynt er slegin á lofti. Ég var þarna. Ég stóð álengdar. Sævar...

I am in a mind flow (1 álit)

í Smásögur fyrir 13 árum, 12 mánuðum
Þetta byrjaði sem eitthvað létt og skemmtilegt enskuverkefni. Ákvað að halda áfram með þetta eftir Prologue dæmið. I am in a mind flow Prologue: Life at a glance The wind gave me away. My prey caught my scent. I could see how it wrinkled its nose, drawing the flesh upwards in the process so that some white teeth spotted with blood could be seen clearly. It perked its ears so that they were aligned with the fragile and soft outlines of its partially sinous skull. It sidestepped with a growl...

*Smásagnakeppni* Afbökun (2 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 1 mánuði
Afbökun. Það er ekkert gaman að fá vita af því að stundum er eitthvað að. Stundum er manni sagt eitthvað svo mikilvægt, svo bitastætt að heimurinn snýst við. Að sjálfsögðu gerir hann það við sem flest tækifæri. Það geta fáir sagt að þeir hafi átt atburðarlausa ævi. Margt fer úrskeiðis, margt er ábótavant en sem betur fer þá er margt gott. -Melkólfur Steingrímsson(f:1983, áætlað er að hanni hafi dáið 2003-2004 þar sem ekkert spurðist til hans í mannabyggðum) Það síðasta sem hann skrifaði áður...

Fyndið Omegle samtal (25 álit)

í Sorp fyrir 14 árum, 1 mánuði
Margir vita hvað Omegle.com er? Það er svona dæmi þar sem þú getur talað við random manneskjur hvaðaneina úr heiminum. Hér er samtal sem sýnir bara fram á það hve vitlaust fólk getur verið :D You're now chatting with a random stranger. Say hi! You: Það er so gott að kúra. (hello there btw) :D Stranger: Hello there with your crazy made up language You: It isn't made up :D You: It's this song I have stuck on my head. Stranger: What language is it then? You: Icelandic. Stranger: Haha everyone...

Uppvakninga rapp texti (16 álit)

í Sorp fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Öhmmm… já. Ég get ekki mikið sagt. Ég var að spila left 4 dead þegar að ég fór að hugsa út í bakgrunnstónlistina í þeim leik og ég hugsaði með mér hversu osom það væri að hafa rapplag og tuttugu mínútum seinna var ég kominn með þennan texta. Kunni ekki við það að senda þetta inn á ljóð þar sem að þetta er… hlandsúrt material. Zombiezzzzzzz!!! Skín úr augum þeirra bræði, smituð af mennsku hundaæði, en þeir kumpánar mig elta, slefa blóði og þeir gelta. Hér er ekki gaman að vera, alltof...

Heimskspeki (8 álit)

í Sorp fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Ég hef aldrei í rauninni hugsað mér að fara út í heimspeki en oft á tíðum koma upp vangaveltur sem mér þætti vert að deila. Endilega komið með aðrar hliðar á málunum því að það er alltaf gott að víkka sjóndeildarhringinn. Hér eru nokkrar vangaveltur. Vangavelta Nr.1 Hvort er líklegra að þú deyjir úr hlátri ef þú ert með: a) Astma b) Flogaveiki c) Lungnabólgu Persónulega myndi ég halda að það væri annaðhvort A eða C þar sem að þú værir líklegri til þess að kafna. Vangavelta Nr.2 Setjum upp...

N.A.M.R (0 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Athugasemdir höfunds; Hæhæ. Ég er að byrja með nýja sögu sem mun verða í fjórum pörtum. Þetta er tilraun hjá mér og ólíkt því sem ég hef verið að gera með orsakavöld (sem er núna á pásu) þá veit ég nákvæmlega hvernig sagan er og ég er búinn með hana. Það eina sem ég á eftir er að setja hana fram á eðlilegan hátt með meira kjöt á beinunum. Já, þetta er vísindaskáldsaga og því hefur þetta EKKERT að gera með vísindi. Enjoy :D Partur 1 N.A.M.R. 24. Febrúar 2038. Mannkynið á aðeins fáar stundir...

3.141592 anó (2 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 3 mánuðum
3.141592 anó Vígvöllur, svartur og hvítur Yfir hann þýtur, Er niður á ýtir Hermenn, svartir og hvítir. Í minnugum dansi saman setur. Er leikandi létt á snertir, og enginn vanmetur, hljóma óskertir. Tónar sem koma í fylkingaforðum, sem fást ekki sagðir í orðum. Margir með tímanum þykjast binda, saman í einstaka flokk, alternative, solo, barokk, en í þessu skín sjálf manns í gegn, og er því mönnum um megn, að vita hvað tónarnir mynda. Víst er þó að flestir sammæla, að bundið er í hljómfalli...

Færðin er fjandans megin. (1 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Samið vegna þeirra leiðindafærðar sem nú er á Akureyri, (24-27 des.) Fannfergi margan manninn særir, Bölvaður bíllinn situr fastur, Ef bara'ð betra veður væri, Þá væri ég manna kátastur. Ekkert gerist þó undan ég grafi, En hríðin með vindi í aukana færist, Ég er nýbú'n að moka en allt er á kafi, Já, stutt er í það að ég ærist. Ég bind nú með reipi við stuðaradrjólann, Ég vona að togið mér haggi, En djöfulsins druslan hún spólar og spólar, Hví ert'ekki fjórhólakaggi. Já eins og ég segi' er...

Orsakavöld. Kafli 6, partur tvö. (0 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Orsakavöld Athugasemdir höfunds: Olræt. Það er byrjað að líða lengra og lengra á milli innlegga í þessari sögu. Ég vonast til að geta byrjað aftur á því að senda með stuttu millibili, sem fyrst. Kafli 6, partur 2. ”Andskotinn, ekki þetta aftur,” hugsaði Haddur er hann leit í kringum sig. Hann bældi niður óreiðutilfinninguna sem tók sér bólfestu í miðlægum heimkynnum hans. Hann sat við langt rautt eldhúsborð í skálanum rétt hjá Fagurhólsmýrarflugvellinum. Þetta var ekki merkilegur flugvöllur....

Blindrækni (3 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Bleghh… bara eitthvað stutt bull sem skaut sér upp í kollinn á mér. -Blindrækni. Forvitnin drap köttinn. Þetta hafði ætíð verið uppáhalds málshátturinn minn. Ég er viss um að amma kenndi mér hann þegar ég var þriggja ára. Mér fannst það ekkert fyndið á þeim tíma. Ég man að ég var að leika mér á grjóthnullungnum stóra í garðinum hjá ömmu og afa. Grábröndóttur köttur, Perla hét hún, skaust undir bílinn hjá afa því að ég var að elta hana. Kötturinn sneri sér síðan við og teygði hausinn undir...

Dönskuskita (4 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 4 mánuðum
ÍSLENSKAN ER MITT MÁL Ath, (þeir sem kunna lagið úr portal (still alive) syngjið það undir). Btw, ég hef sosem ekkert á móti dönsku en ég hef mikið á móti því að læra hana (nenni því einfaldlega ekki) Ég dönskuna hata, Danska er tungumálaflopp, Talmál sem að getur sig ekki fest. Ég er ekki' að plata, Ég segi að nú er komið stopp, Íslenskan er orðin best. Og allir danirnir sjá, Það erum við sem höfum ekk'í linmælgi villst, Það erum við sem höfum tungumál sem að skilst, Íslendingar far' á stjá...

Á vængjum drekans. (1 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Athugasemdir höfunds. Þessa sjálfstæðu smásögu er ég búinn að hafa á heilanum í smá tíma og ákvað ég loks að skrifa hana því ég er nú hvort eð er með skemmtilega ritstíflu á Orsakavöldum. Btw. Afhverju tekur hugi ekki við indent (TAB)? Á vængjum drekans. Flestir kalla mig Jögga en ég heiti þó réttu nafni Jörundur. Það er ekki mikið sem ég get sagt frá sjálfum mér. Ég er lítill og nettur, hlédrægur, trúlaus, hata þriðjudagana og aðhyllist kalda rökhugsun. Þannig horfi ég allavega á sjálfan...

Orsakavöld. Kafli 6 partur 1 (0 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Orsakavöld kafli 6 partur 1 Athugasemdir höfundar Stutt innlegg því miður Mikið er gaman að sjá hvað allt er að fara til fjandans hjá greyið persónunum mínum [kaldhæðni]. Anyway, langt síðan síðast. Ég er í smá klemmu með söguna þar sem að ég er búinn að flækja hana svolítið mikið fyrir sjálfum mér. Þar sem ég skálda upp alla hliðarpunkta söguþráðarins á staðnum fara þeir þvers og kruss hver á annan þótt að þráðurinn haldi sér strekktum á sama hátt og planað var í upphafi. Þennan kafla var...

Hversdagslegt samtal breta eftir bankahrunið. (4 álit)

í Sorp fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Samtal á milli breta. 1:Good afternoon! 2:Good afternoon bot. 1:Why would you assume that I am a bot? 2:Because you are. 1:Aren't you referring to your own idendity? I am Bond, James Bond. 2:They aren't real. I've been to mars. No life. 1:Now wait a second. James bond, i mean, I'm not a marsian. Maybe i am a marsupial? 2:Really? 1:No 2:Then what's the truth? 1:I'm a former liberal defender of the fallen Atlantis! 2:You don't need to know my name. 1:Given my superior status, then no! I don't...

Orsakavöld Kafli 5, partur 3 (3 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Úlfur í sauðagæru: Orsakavöld Kafli 5 partur 3 Athugasemd: Jeij. Ég er kominn erlendis frá og ætla mér að halda áfram með söguna. Þessi síðasti partur kafla 5 verður með svipuðu stílsniði og ég reyndi að tileinka mér með og frá fimmta kafla. Ef ykkur finnst pirrandi og vitið sjaldan hvenær er verið að svissa eða skipta á milli atburða, staðsetninga eða persóna, þá hef ég tvöfalt bil sem skilur eftir sig auða línu á milli. Ég kem til með að skila innleggum með lengra millibili heldur en í...

Sagnaþulurinn (1 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Sagnaþulurinn. Vildi ég leggja við hlustir og heyra, Sagði hann frá og vildi ég meira, Bugull ég beið eftir næsta orði, Hvað skildi maðurinn bera á borðið? Hver er sú frásögn sem fer í mitt eyra? Tekur hún kvíslir sem sundrast í fleira? Glaðlífar myndir sem leika við ljáinn, Örgrandur maður sem horfir út skjáinn. Illgreinanlegur um sannveru svífur Með sér í málinu tilsögn hann hrífur, Hann segir frá réttu, hann segir frá röngu, einnig frá því sem var fyrir alllöngu, Í húminu þylur að hans...

Orsakavöld Kafli 5 partur 2 (1 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Úlfur í Sauðagæru: Orsakavöld kafli 5 partur 2. Náðargjöf. Ég er búinn að vera virkilega virkilega upptekinn og því spýti ég út úr mér styttri innleggum. Ég kem til með að vera svolítinn tíma erlendis og því sendi ég inn annan part af þremur af kafla 5 núna. Og já. Ég geri mér grein fyrir því að þessi partur er mjög mjög mjög furðulegur. Einhvern veginn varð hann að gera þetta. Hann hafði hugsað sér að nota eitthvað til þess að beina athyglinni annað. “Ekki eins og í hin f****** skiptin...

Orsakavöld kafli 5 partur eitt (5 álit)

í Smásögur fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Athugasemd: Svolítið langt síðan síðast. Btw, þessi kafli gæti orðið svolítið ruglandi. Meðan ég man. Nú ætla ég að hafa þannig að þegar persónur hugsa eitthvað, þá birtist það skáletrað innan gæsalappa en annars mun stíllinn vera hinn sami. Ég biðst líka afsökunar á því hversu fáránlega stuttur þessi kafli er. Ég varð hins vegar að gera þetta svona þar sem að efni næsta parts verðu að hanga allur saman til þess að eitthvað vit sé í honum (að mínu mati). tveimur mánuðum fyrir...

Himinkyndill (10 álit)

í Ljóð fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Í drunga dags og frosti nætur, dansar um himingeiminn. Litrík ljós sem sólin grætur, lýsa' yfir norðurheiminn. Bresta í heithvolfi, háu í söng, heyra þau vættir og vallarrósin. Til norðurs og suðurs, endilöng, nýfædd norðurljósin. Þau boða birtu í kuldans böl, í bálþýddri jörðinni brakar. Kuldrepin angistin, níðfrosin kvöl, í landsins frera og klaka. Á tómum fletinum taka þau sporið, í taktlausum spretti þar stigið. Í hríðinni gleðst er á himininn horfir, hæstánægt mannskepnugreyið. -Höf:...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok