ÍSLENSKAN ER MITT MÁL

Ath, (þeir sem kunna lagið úr portal (still alive) syngjið það undir). Btw, ég hef sosem ekkert á móti dönsku en ég hef mikið á móti því að læra hana (nenni því einfaldlega ekki)


Ég dönskuna hata,
Danska er tungumálaflopp,
Talmál sem að getur sig ekki fest.
Ég er ekki' að plata,
Ég segi að nú er komið stopp,
Íslenskan er orðin best.

Og allir danirnir sjá,
Það erum við sem höfum ekk'í linmælgi villst,
Það erum við sem höfum tungumál sem að skilst,
Íslendingar far' á stjá
Við berjum okkur frá
Þar til danskan hörfar og dylst

Ég vil ekki læra,
Það sem að nýtist ekki mér,
Á aldrei eftir að tala við neinn dana,
En sú óværa,
Ég heyrði dönsku koma frá þér,
Viltu deyja einmana,

Eða viltu þann kraft,
Sem að felst í sjálfstæði og þjóðmennskunni
Í okkar móðurmáli Íslenskunni,
Þá til fjandans danskan fer
Og í fararbroddi er,
Sú tunga sem hefur það allt.

-höf skandalabrandu