Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Allt að smella saman (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eftir frekar dapur gengi í upphafi leiktíðar virðist allt vera að smella saman hjá Parma. Í upphafi leiktíðar gekk markaskorun illa og léleg úrslit voru að nást, jafnvel gegn mjög slökum liðum. Síðan var skipt um manager og nú er Parma komið á fljúgandi ferð. Mörkin streyma inn(Di Vaio í gríðarlega góðu formi) og í síðustu 6 leikjum hafa 5 unnist og eitt jafntefli hefur litið dagsins ljós. Í dag vannst 1-3 útisigur gegn Udinese, því miður missti ég af leiknum en eftir því sem ég kemst næst...

Einn fallegasti og mest „touching" texti allratíma (3 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 1 mánuði
Queen eru að mínu mati besta hljómsveit allra tíma, og textarnir þeirra voru oft á tíðum ótrúleg snilld, þá sérstaklega þeir sem Freddie gerði. Eins og flestir vita er Freddie núna dáinn(RIP) en rétt áður en hann gaf upp öndina gerðu Queen sína síðustu plötu, Made in heaven, sem er gríðarleg snilld, og mjög tilfinningaþrunginn, enda hefði Freddie getað hrokkið uppaf hvenær sem er meðan á upptökunum stóð, og bera lögin mörg merki um það. Mig langar til þess að birta eitt það fallegasta hér,...

Ekki fleiri mistök á Tardini (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eftir jafntefli gegn Milan á útivelli í síðustu umferð, 2-2, sigla Parma nú úfinn sjó í fjórða sæti seríu A, tíu stigum frá 3. sæti en aðeins einu frá Atalanta í sem eru í 5. sætinu og þremur stigum frá Milan sem verma 6. sætið. Á morgunn leika Parma menn við botnlið Bari og ef úrslitin verða samkvæmt bókinni ættu þar að koma örugg þrjú stig í hús. En Nestor Sensini, hinn argentíski miðvallarleikmaður er ekki alveg 100% öruggur, þar sem Bari lönduðu sigri gegn Fiorentina í síðustu umferð og...

Milosevic að koma til (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Í viðtali við heimasíðu Parma við Savo Milosevic kemur það fram að hann er farinn að hressast. Eftir að hafa átt í einhverjum líkamlegum erfiðleikum í byrjun leiktíðar segir hann að fyrir u.þ.b. tveimur vikum hafa hann í rauninni í fyrsta skipti þetta tímabil liðið vel og nú sé hann kominn í toppform, og geti vonandi bætt mörkum þar ofaná! Af Parma er það annars að frétta að þeir eru komnir í fjórða sætið í deildinni eftir 5-0 sigur í síðustu umferð á móti Perugia, og setti Milosevic tvö...

Kanu farið að leiðast (1 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Hinn frábæri knattspyrnumaður Kanu hefur ekki fengið mörg tækifæri í vetur með Arsenal og nú virðist þolinmæðin vera að þverra. Frank Sedoc, umboðsmaður Kanu, hótaði því að ef Kanu fengi ekki að spila á móti Lyon í meistaradeildinni myndi hann fara frá Arsenal, og að þetta væri ekki hótun því það væri engin hótun í sannleikanum. En eitthvað virtist Frank sjá eftir orðum sínum og dró þau til baka í morgunn, og segist ekki hafa sett Arsenal neina afarkosti. En það er þó alveg ljóst að Kanu er...

Fyrsti bíllinn (20 álit)

í Bílar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Jæja nú líður senn að því að ég kaupi mér fyrsta bílinn minn og ég vil vanda valið! Ég ætla mér ekki að kaupa neinn milljónabíl heldur bara byrja ódýrt og vinna mig svo upp þegar ég er orðinn þroskaðari ökumaður :) Og þá er spurning, hvað á maður að kaupa ? Ég er mest að spá í notuðum bíl, og er t.a.m. búinn að finna einn BMW á bill.is, en hvernig bílar eru BMW? Bila þeir oft ? Sjaldan eða aldrei ? Og eyða þeir miklu ? Ég hef ekki gert upp hug minn, og allar hugmyndir og ráðleggingar frá mér...

Battlefield Earth (37 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég sá fína mynd um helgina, hún hét Battlefield Earth. Já ég sagði Battlefield Earth! Ég bara verð að verja þessa ágætu mynd, synd að gagnrýnendur hökkuðu hana svona í sig og John Travolta kom út í stórum mínus. Ég ætla ekki að fara að reka söguþráð myndarinnar í smáatriðum en hún gengur út á það að geimverur hafa yfirtekið jörðina(árið 3000) og þeir fáu menn sem enn lifa eru í ánauð og í útrýmingarhættu, hvort hinir góðu eða illu fara með sigur í endann ætla ég ekki að segja ykkur en...

Palermo var aldrei á leið til Parma (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég hafði oft heyrt því fleygt að Martin Palermo væri á leiðinni til Parma (reyndar einnig Man Utd og fleiri félög). En þetta var víst bara bölvuð vitleysa, Parma buðu Napoli að lána þeim Fimm milljónir punda svo að Napoli þyrftu aðeins að greiða 5 milljónir sjálfir. Ég hef sagt það áður og segi það aftur að Parma er ekkert fátækt smáfélag, Parmalat mjólkurbúðið svoleiðis moka peningum í þá og þeir eru langt frá því að vera fátækir.

Grindvíkingar að hressast og skipta um Kana (3 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Eftir að hafa tapað þremur leikjum í röð,detta útúr bikarnum og vera komnir niðrí 7. sætið í deildinni(Þar sem þeir sitja reyndar enn) tóku Grindvíkingar sig saman í andlitinu og unnu Skallagrímsmenn í Röstinni(fyrir þá sem ekki vita það þá heitir heimavöllur Grindvíkinga þetta). Þetta leit reyndar ekki vel út í byrjun og voru Grindvíkingar undir í hálfleik, 34-40. Í seinni hálfleik fóru hlutirnir að ganga, þriggjastiga skotin duttu og Kevin Daley tróð nokkrum sinnum með tilþrifum og var með...

Ferguson að styrkja vörnina ? (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Sir Alex Ferguson er þessa dagana að spá alvarlega í að kaupa 19 ára gamlan norskan varnarrisa frá Valerenga sem heitir Pah Madou Ka. Ferguson hefur tvisvar fengið piltinn til reynslu hjá United og vakti hann mikla athygli viðstaddra. Hann spilaði sína fyrstu landsleiki með Norðmönnum í Hong Kong um daginn. Nils Johan Semb, landsliðsþjálfari Norðmanna, hefur mikið álit á Ka og hafði þetta að segja um hann: “Pah er einn mest spennandi leikmaður sem ég hef séð lengi. Það er ekki nokkur...

Grétar Hjartarson kominn aftur til Grindavíkur (5 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Grétar Hjartarson, sóknarmaðurinn knái er kominn aftur í herbúðir Grindvíkinga, kaupverðið er talið vera á bilinu 6-7 milljónir. Grétar snýr heim frá Lillestrøm en þangað fór hann fyrir 10 milljónir en því miður fyrir hann fékk hann lítið að spila. Grindvíkingar eru ekki árennilegir hvað varðar sóknarlínuna en spurningin er hvort þeir ættu ekki að reyna að finna varnarmann til þess að fylla skarð Guðjóns Ásmundssonar ?

Sigur ! ! ! (8 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Jæja nú eru hlutirnir farnir að ganga, að ég held amk! Parma lönduðu sigri um helgina, meira að segja útisigri! Sergio Conceicao skoraði mark Parma strax á sjöttu mínútu og þar við sat. Að sögn var vörn Parma frábær í leiknum og Buffon varði víti frá sínum gamla félaga, Enrico Chiesa(mikið sá ég á eftir honum þegar hann fór), að öðrum ólöstuðum var Buffon hetja leiksins sem varði oft vel þegar þungar skyndisóknir dundu á Parma. Svo fékk Toldo, markvörður Fiorentina að líta rauða spjaldið...

Vændi á Íslandi (54 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Í fréttum nú fyrir stuttu kom það fram að á Íslandi sé 1 vændiskona á hverja 100 karlmenn, 18 ára og eldri. Þetta eru fáránlegar tölur því það er miðað við ALLA strippara sem komu til landsins (í kringum 1700) og miðað við að þær sé allar á Íslandi í einu, og hver segir að allir stripparar séu vændiskonur ? En ef þær eru það, hvað með það ? Hvað er að vændi ? Þetta eru bara konur að sjá fyrir sér! Það var einmitt grein í B&B um daginn þar sem tekið var viðtal við íslenska stelpu sem stundar...

Klónum manna (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Það hefur víst verið í umræðunni útí Bretlandi hvort næsta skref í klónun sé ekki að klóna menn, og þ.a.l. knattspyrnumenn! Ian Gibson í bresku ríkisstjórninni hefur undanfarið fengið mörg bréf þess efnis hvort ekki eigi að klóna David Beckham (!) en Ian þvertók fyrir það og sagði að þeir væru sko ekki á leiðinni að fara að klóna menn. Mér finnst þessi umræða um að klóna íþrótta og afreksmenn svolítið fáránleg því menn mótast af umhverfi sínu og ef þú myndir klóna David Beckham fengiru ekki...

Jú hann Chandler er eitthvað breyttur! (18 álit)

í Gamanþættir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég las grein hérna um daginn um það að Chandler væri breyttur, þá fannst mér þetta fjarstæða en þegar ég horfði á þáttinn í gær fór ég að taka eftir þessu, allur svipur hans er eitthvað svo öðruvísi, brosið sem hann kreisti fram í myndtökunni sannfærði mig, þegar hann brosir þessu “kaldhæðnisbrosi” eins og maðurinn sagði, þá er eitthvað ekki eins og það á að sér að vera. Svo er hann líka kominn með svo ellilega hárgreiðslu eitthvað og gleraugun breyta svipnum líka mikið. En þegar öllu er á...

Diablo II Newbie (8 álit)

í Blizzard leikir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Jæja, ég lét loksins verða af því og fékk mér Diablo II, hann var á tilboði (Special gift set) inní Japis á 2990. Nánast allur minn frítími þessa dagana fer í leikinn (ég hef amk ekki spilað neinn annan leik síðan ég fékk hann) Ég er búinn með act I og núna er ég hægt og bítandi að vinna mig í gegnum act II. En það hafa vaknað nokkrar spurningar, eins og t.d. hvaða hlut á ég að láta “Imbjúa”? Ég er Amazon og hef verið að spá í einhverjum boga. en þá hvaða boga ? Hvaða bogi er bestur ? Mig...

Figo hvetur Beckham til að fara (12 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Á manutd.is er athyglisverð grein um það að Luis Figo telur það eina rétta fyrir Beckham, ef hann vill verða jafn góður og Figo(egó) að þá sé það eina rétta í stöðunni að yfirgefa Manchester og halda uppá meginlandið til frekari landvinninga. En annars segr Figo:“Beckham er vissulega frábær leikmaður, en til að ná öllu sínu fram þá þarf maður áskorun” sagði Figo. “Ég var hjá Sporting Lisbon. En síðan að ég fór til Spánar þá hefur mér farið mikið fram sem leikmaður.” Síðan heldur hann...

100 bestu plötur síðustu aldar (VH1) (26 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég var að enda við að lesa hérna greinina um Hlustendaverðlaun FM og hvað þau eru fáránleg, og þess vegna fannst mér ég vera skyldugur til að tjá mig um lista VH-1 yfir hundrað bestu plötur síðustu aldar en þar er greinilegt að það voru ekki sérfróðir menn sem völdu þann lista. Ég hafði heyrt að plötur með Britney Spears og N*sync væru á þessum lista, sem væri náttla fáránlegt því þetta fólk semur ekki einu sinni tónlistina sína sjálft, en það var víst bara bull, þessi bönd eru ekki á...

Friends ekki eina vitið! (11 álit)

í Gamanþættir fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það skrifaði einhver mætur maður(eða kona) grein hér um daginn um það að Friends væri eini almennilegi þátturinn og dauðadæmdi um leið allar aðrar stöðvar nema Popptíví(ojbara) Ég var nú ekki alveg sammála og skrifaði gríðarlangt álit sem ég hef ákveðið að endurtaka svo sem flestir geti notið þess, enjoy :) Í fyrsta lagi Popp tíví: Ömurleg stöð sem spilar ógeðslega tónlist, það er ekki hægt að horfa á nema svona 1,5% af myndböndunum þarna(okei það eru gellur í sumum þannig að stundum stillir...

Ástfanginn (4 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Ég ákvað að tjá mig í ljóðrænu formi, til að tjá þér ást mín'á þér. Hjarta mitt skoppar líkt og það standi á gormi, hví lítur þú ekki við mér ?

Malesani, þjálfari Parma, rekinn (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Það gerðist loksins, Parma létu Malesani fjúka, en gengið í ár hefur verið arfaslakt, og síðasta naglinn í kistulokið var 0-2 tap á heimavelli á móti Reggina (ef man rétt enduðu Parma í 3. eða 4. sæti úi fyrra, eða var það 5. ? Who\\\'s counting:) En sem sagt, þjálfarinn var látinn taka pokann sinn og við tók Arrigho Sacchi, en það var hann sem kom Parma í A-seríuna á sínum tíma. Hann stýrði síðan AC Milan og átti stóran þátt í því að gera þá að því stórveldi sem þeir voru. Hann hefur m.a....

Að kjafta frá plottinu í bíómyndum! (13 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það er einn hlutur sem ég þoli ekki, þegar fólk er að segja manni, eða bara tala um, plottið í bíó myndum sem maður er ekki búinn að sjá! Eins og t.d. veit ég alveg hvað gerðist í Sixth Sense(ætla samt ekki að skvíla því hér!) og ég hef ekkert voðalega mikinn áhuga á því að sjá hana lengur! Svo hafði ég ekkert að gera á Scary Movie því ég var búinn að heyra gjörsamlega allt úr henni! Og ég hló ekki mjög mikið að Orgazmo og Mafia, það var búið að segja manni nánast allt það fynda, og ég get...

Pleasantville (23 álit)

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Mig langar til þess að skrifa hérna um athyglisverða mynd sem ég sá í gærkvöldi, Pleasantville. Þegar ég sé þessa mynd fyrst auglýsta á sínum tíma, þegar hún var enn í bíó, þá fannst mér þetta forvitnilegt, mest allt svarthvítt en stöku sinnum sást litur. Lítið var gefið upp um söguþráðinn og ekki fór ég á hana í bíó og því kraumaði í mér forvitnin. Þess vegna var ég ákveðinn í því að horfa á hana þegar ég sá hana auglýsta í gær. Þetta er ótrúlega sniðug mynd þó svo að hugmyndin sé nú nokkuð...

Endirinn á Frelsun Berts (7 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Okei, ég veit að þetta eru smásögur en þetta er eina söguáhugamálið hérna (myndasögur don't count) Málið er nýja Bert bókin. Ég elska Bert bækurnar ! Þær eru frábærar, þegar maður var yngri las maður um Bert að gera einhver skammarstrik en nú er hann farinn að eldast og bækurnar eru farnar að vera rætnari! Mér hefur alltaf fundist Bert vera svona hálfgerður AlterEgo ég :) Ungur drengur sem heldur að hann sé hellisbúinn Milton og hugsar oft mjög klámfengar hugsanir :) Þess vegna var ég mjög...

Jólagjöfin mín (22 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Heilir og sælir lesendur góðir, mig langar til að ræða aðeins um jólagjöfina mína, Voodoo3 3000 skjákort. (þegar ég keypti það var ég EKKI búinn að lesa greinina Fall 3dfx!) Okei, byrjum á byrjuninni. Talvan mín er ekki alveg sú nýjasta á markaðnum, en engu að síður ágæt til síns brúks. Mig hefur lengi langað í þrívíddarkort og almennilega grafík en gamli jálkurinn minn ræður nú ekki við hvað sem er þannig að ég skellti mér á Voodoo3 3000, hef aldrei heyrt neitt nema gott af Voodoo kortunum...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok