Sigur ! ! ! Jæja nú eru hlutirnir farnir að ganga, að ég held amk!
Parma lönduðu sigri um helgina, meira að segja útisigri!
Sergio Conceicao skoraði mark Parma strax á sjöttu mínútu og þar við sat. Að sögn var vörn Parma frábær í leiknum og Buffon varði víti frá sínum gamla félaga, Enrico Chiesa(mikið sá ég á eftir honum þegar hann fór), að öðrum ólöstuðum var Buffon hetja leiksins sem varði oft vel þegar þungar skyndisóknir dundu á Parma. Svo fékk Toldo, markvörður Fiorentina að líta rauða spjaldið þegar hann braut á Mboma.

Vonandi er þetta leikurinn sem kveikir í Parmamönnum og núna verður stefnan bara tekin á titilinn!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _