Battlefield Earth Ég sá fína mynd um helgina, hún hét Battlefield Earth. Já ég sagði Battlefield Earth! Ég bara verð að verja þessa ágætu mynd, synd að gagnrýnendur hökkuðu hana svona í sig og John Travolta kom út í stórum mínus.

Ég ætla ekki að fara að reka söguþráð myndarinnar í smáatriðum en hún gengur út á það að geimverur hafa yfirtekið jörðina(árið 3000) og þeir fáu menn sem enn lifa eru í ánauð og í útrýmingarhættu, hvort hinir góðu eða illu fara með sigur í endann ætla ég ekki að segja ykkur en sennilega geta flestir giskað :)

Myndin er hin fínasta afþreying og alls ekki leiðileg, söguþráðurinn er skemmtilegur en reyndar er sumt svoldið ýkt, þú lærir t.a.m. ekki á orustuflugvél á einni viku! Svo er annar STÓR galli við myndina, hvað hún er hræðilega illa tekin! Tökumennirnir virðast allir hafa verið skakkir við tökur, a.m.k. er nánast alltaf allt hallandi í myndinni. Það er frekar þreytandi til lengar.

En annars er þessi mynd hin fínasta afþreying og alls ekki slæm, svona 2,5 stjörnur af 4 mögulegum.

Og eitt hérna í lokin, Travolta ætlar að gera framhald af myndinni!
ÞAð komst ekki nema helmingurinn af bókinni sem hann gerði myndina eftir fyrir í myndinni :)
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _