Jæja, ég lét loksins verða af því og fékk mér Diablo II, hann var á tilboði (Special gift set) inní Japis á 2990. Nánast allur minn frítími þessa dagana fer í leikinn (ég hef amk ekki spilað neinn annan leik síðan ég fékk hann) Ég er búinn með act I og núna er ég hægt og bítandi að vinna mig í gegnum act II. En það hafa vaknað nokkrar spurningar, eins og t.d. hvaða hlut á ég að láta “Imbjúa”?
Ég er Amazon og hef verið að spá í einhverjum boga. en þá hvaða boga ? Hvaða bogi er bestur ?

Mig leikur forvitni á að vita hvort einhver hefur fullkomnað einhver Set ? Ég tam er með geðveikt Sash, Death Sash, en hverjar eru líkurnar á maður fái fullt Set ? Svo er Kubburinn góði, hvað á maður að setja í hann ? Ég setti þrjá hringi í hann í góðri trú, hélt að ég myndi fá eitthvað uber amulet en nei, ég fékk eitthvað bölvað rusl sem gerði bara eitt, jók light radius um 1! 1!
Hringirnir voru allir góðir og ég var vægast sagt sár að missa þá.

Svo eru það málaliðarnir, er það peningana virði að leigja þá ? og þá annað með peningana, eru gamble hlutirnir any good?

Það er örugglega margt fleira sem ég ætlaði að segja en núna man ég ekki eftir fleiru! Endilega gefið mér góð ráð :)
Mail eru líka vel þegin í mercury_jr@yahoo.com
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _