Kanu farið að leiðast Hinn frábæri knattspyrnumaður Kanu hefur ekki fengið mörg tækifæri í vetur með Arsenal og nú virðist þolinmæðin vera að þverra. Frank Sedoc, umboðsmaður Kanu, hótaði því að ef Kanu fengi ekki að spila á móti Lyon í meistaradeildinni myndi hann fara frá Arsenal, og að þetta væri ekki hótun því það væri engin hótun í sannleikanum.
En eitthvað virtist Frank sjá eftir orðum sínum og dró þau til baka í morgunn, og segist ekki hafa sett Arsenal neina afarkosti.

En það er þó alveg ljóst að Kanu er ekki ánægður með hvað hann fær lítið að spila og kæmi ekki á óvart þótt hann hefði sig brátt á brott frá Highbury.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _