Sir Alex Ferguson er þessa dagana að spá alvarlega í að kaupa 19 ára gamlan norskan varnarrisa frá Valerenga sem heitir Pah Madou Ka. Ferguson hefur tvisvar fengið piltinn til reynslu hjá United og vakti hann mikla athygli viðstaddra. Hann spilaði sína fyrstu landsleiki með Norðmönnum í Hong Kong um daginn.

Nils Johan Semb, landsliðsþjálfari Norðmanna, hefur mikið álit á Ka og hafði þetta að segja um hann: “Pah er einn mest spennandi leikmaður sem ég hef séð lengi. Það er ekki nokkur spurning að hann er einn efnilegasti varnarmaður Noregs í dag.”

Ef Ferguson hyggst kaupa drenginn er kaupverðið talið vera um 3 milljónir punda, sem er nú ekki svo mikið á nútímamælikvarða í fótboltanum, en andskotands nóg fyrir 19 ára strák!
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _