Milosevic að koma til Í viðtali við heimasíðu Parma við Savo Milosevic kemur það fram að hann er farinn að hressast. Eftir að hafa átt í einhverjum líkamlegum erfiðleikum í byrjun leiktíðar segir hann að fyrir u.þ.b. tveimur vikum hafa hann í rauninni í fyrsta skipti þetta tímabil liðið vel og nú sé hann kominn í toppform, og geti vonandi bætt mörkum þar ofaná!

Af Parma er það annars að frétta að þeir eru komnir í fjórða sætið í deildinni eftir 5-0 sigur í síðustu umferð á móti Perugia, og setti Milosevic tvö mörk í leiknum. Í Evrópukeppninni eru Parma hins vegar úr leik, þeir unnu PSV í seinni leiknum, 3-2(Milosevic setti tvö) en PSv fóru áfram á mörkum skoruðum á útivelli(4-4 var samanlögð markatala)

Parma geta nú bara vonandi einbeitt sér að deildinni og uppskorið meistaradeildarsæti á næsta ári.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _