Í fréttum nú fyrir stuttu kom það fram að á Íslandi sé 1 vændiskona á hverja 100 karlmenn, 18 ára og eldri. Þetta eru fáránlegar tölur því það er miðað við ALLA strippara sem komu til landsins (í kringum 1700) og miðað við að þær sé allar á Íslandi í einu, og hver segir að allir stripparar séu vændiskonur ?

En ef þær eru það, hvað með það ? Hvað er að vændi ? Þetta eru bara konur að sjá fyrir sér! Það var einmitt grein í B&B um daginn þar sem tekið var viðtal við íslenska stelpu sem stundar vændi og finnst það frábær vinna með góða kaupi og frjálsum vinnutíma!

Hvernig væri að koma bara með vændi uppá yfirborðið, í staðinn fyrir að vera að pukrast með þetta einhverstaðar í undirheimunum kolólöglegt! Fylgjum þýskurum eftir og stofnum stéttarfélög um vændi :)
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _