Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
Adddi
Adddi Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
208 stig
Betur sjá augu en eyru
Adminar á Startrek (3 álit)
í Sci-Fi fyrir 20 árum
Hvernig er það, ef maður sendir inn könnun til ritskoðunar, er þá ekki allavega hægt að segja manni ef hún er ekki hæf til að setja upp. Fyrir utan það að það sem ég hef verið að senda inn ætti miklu frekar heima þarna en vitleysukönnunin sem er búin að vera uppi í marga mánuði.
Betur sjá augu en eyru
Óþokkakönnun (0 álit)
í Sci-Fi fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Þessi könnun um mestu óþokka vetrarbrautarinnar er nú soldið skrítin, Borg eru eiginlega þeir einu af þeim sem eru nefndir sem eiga skilið að vera á listanum. Minn listi hefði verið svona: 1.Borg 2.Dominion (Changelings þ.e.a.s.) 3.Romulans og svo hefði e.t.v. mátt bæta inn Cardassians þarna einhvers staðar, og Klingonum ef maður er í stuði. Þetta er ef maður telur ekki með tegundir sem hafa bara komið fram í einum þætti einhvers staðar. Kazon? Mestu óþokkar vetrarbrautarinnar??? JemHadar?...
First Contact (5 álit)
í Sci-Fi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég var að sjá þessa mynd enn eina ferðina, ég vildi bara minna fólk á hvað þetta var yndisleg mynd. Lifið heil.
Betur sjá augu en eyru
Frumlegheit í korkanöfnum (2 álit)
í Sci-Fi fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hvað ætli við eigum marga korka sem heita “StarTrek” ? Ég vil beina þeim tilmælum til notenda áhugamálsins, jafnt og þeim sem koma hingað bara til að gera grín að okkur, að reyna að sýna smá lit í vali á korkanafni.
Dulspeki sem vísindagrein (1 álit)
í Vísindi fyrir 21 árum
Það má kalla dulspeki mörgum nöfnum, en “Vísindagrein” er ekki eitt af þeim. Mér finnst það alveg fáránlegt að halda slíku fram. Reyndar nálgast dulspeki það að vera and-vísindi (haha, tvöföld merking: “and-vísindi”), ásamt stjörnuspeki sem er fínt dæmi um eitthvað sem er algjörlega óvísindalegt.
Könnun um ljóshraða (0 álit)
í Geimvísindi fyrir 21 árum
Þessari spurningu er auðvelt að svara, ef við ímyndum okkur að þú kæmist á einhvern hátt á ljóshraða myndi ferðalagið taka nákvæmlega 0 sekúndur fyrir þér, hvert sem ferðinni er heitið. Fyrir einhvern sem stendur við hliðina myndi tíminn vera (fjarlægðin milli byrjunarpunkts og heimsenda) / ~300.000 km/sek Nema við gerum ráð fyrir að endimörk alheimsins hreyfist til á einhverjum ákveðnum hraða, þá eru samt til jöfnur til að reikna það út.
Könnunin um seríurnar. (6 álit)
í Sci-Fi fyrir 21 árum, 1 mánuði
Hver sem kýs Voyager hefur greinilega ekki séð mikið af Next generation.
Könnunin (3 álit)
í Sci-Fi fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Það sem ég var að velta fyrir mér, hvað er átt við með startrek drasl? Er verið að tala um þessi ömurlegur leikföng og fígúrur sem er framleitt, eða er verið að ræða um startrek þættina sem drasl sem þyrfti að hætta að framleiða? Mér finnst að það þurfi að hætta að framleiða dótið, og eftir að Enterprise hefur runnið sitt skeið ætti að gefa þáttunum svona 5 ára hvíldartíma og gera svo kannski nýja seríu.
Könnun um jafnrétti (3 álit)
í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Málið í dag finnst mér snúast of mikið um að jafn mikið sé af konum og körlum í öllum hlutum, konur eiga t.d. orðið meiri séns en karlar á að komast á þing í vissum kringumstæðum, það var til dæmis rætt að endurraða í þinglista eftir að prófkjöri lauk, vegna þess að engin kona var í neinu af 5 efstu sætunum, þá hefði þurft að færa karl neðar, þó hann hafi verið lýðræðislega kjörinn svona hátt í listann, er það lýðræði? Konur hafa jafn mikinn rétt og karlar til að bjóða sig fram á þing og í...
Könnun um einelti (10 álit)
í Tilveran fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Mér finnst vanta möguleikann “Annað” í þessa könnun. Þegar ég var lítill var gerð heiðarleg tilraun til að leggja mig í einelti í nokkur ár, en ég barði þá af mér í hvert skipti sem þeir reyndu eitthvað. Það fellur strangt til tekið undir nei, en mér þætti samt “annað” betra svar.
Könnun um spilakerfi (1 álit)
í Spunaspil fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Bara koma því á framfæri, sem ég hélt að flestir vissu, að D&D og AD&D er ekki það sama, þau eru svipuð, en reglurnar eru þónokkuð ólíkar.
Könnun um trúarbrögð (2 álit)
í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þetta er ekki nógu góð könnun, það vantar “Trúi ekki á guð en bið samt bænirnar.” Ég hélt áfram að fara með faðirvorið á kvöldin í nokkra mánuði af gömlum vana, eftir að ég varð trúlaus. (my transition period)
Betur sjá augu en eyru.
Varðandi könnun um stríð/frið (4 álit)
í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þetta er soldið óskilgreind spurning, auðvitað er stríð ekki æskileg leið til að tryggja frið, en sagan hefur margsýnt að það getur gerst. t.d. ef önnur hliðin gjörsigrar hina og útrýmir henni, þá er kominn friður. Svo að svarið er “auðvitað er hægt að tryggja frið með stríði”, spurningin ætti að vera hvort það sé æskilegt. Persónulega finnst mér stríð alveg réttlætanlegt í vissum tilfellum og yfirlýst hlutleysi er að mínu mati aumingjaskapur, hvar væri heimurinn í dag ef England og...
Varðandi könnunina Ríki/kirkja (0 álit)
í Deiglan fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég var að skoða stjórnarskrána aðeins og komst að því að það þarf ekki stjórnarskrárbreytingu til að aðskilja ríki og kirkju. Þ.e.a.s. Stjórnarskráin tekur fram að hin Evangelíska Lútherska kirkja eigi að vera þjóðkirkja íslands o.s.fr. En þar er líka sagt :“þessu má breyta með lögum”. Svo seinna er það útlistað hvernig það skuli gert.
Betur sjá augu en eyru.
Hvað í fjandanum er hljóðljómun? (6 álit)
í Vísindi fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég bara spyr.
Betur sjá augu en eyru.
Hvað í fjandanum er hljóðljómunum? (0 álit)
í Vísindi fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég bara spyr.
Betur sjá augu en eyru.
Varðandi könnun um tilgang. (1 álit)
í Heimspeki fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Mér finnst nú svolítill skortur á svarmöguleikum fyrir fólk sem trúir ekki á guðlega forsjá. T.d. er alveg hægt að hafa tilgang í lífinu þó að hann sé ekki eitthvert heimaverkefni frá guði.
Betur sjá augu en eyru.
Athugavert (3 álit)
í Vísindi fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Er ég sá eini sem finnst það asnalegt að hafa trúarbrögð og dulspeki undir vísindi og fræði? Reyndar finnst mér UFO áhugamálið vera aðeins að teygja hugtakið líka.
Betur sjá augu en eyru.
10 - listar (0 álit)
í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Annars var ég að pæla, nú er búið að gera fullt af “Topp 10” listum og ábyggilega slatta af “Botn 10” listum líka. Hefur engum dottið í hug að gera “Meðal 10” lista, þið vitið þessar mjaa..allt í lagi myndir, sem maður kannski sér ekkert eftir að hafa farið á í bíó, en hefði samt ekki, eftir á að hyggja, viljað borga meira en svona 300 kall til að sjá. Hér með skora ég á lesendur að skrifa “Meðal 10” lista
Varðandi könnun um nörda (5 álit)
í Sci-Fi fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Það sem ég vil segja um trekkara er að vissulega eru þeir nördar (þar með ég líka) en á jákvæðan hátt.
Betur sjá augu en eyru.
Könnunin: heimur án stríðs (18 álit)
í Heimspeki fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Hverjar eru forsendur fyrir heimi án stríðs, ef við kæmust á það stig að stríð væru ónauðsynleg og allir gætu leyst sín ágreiningsmál án ofbeldis þá væri það frábært, en ef spyrjandi á við hvernig væri heimurinn ef menn myndu neita sér um að beita vopnavaldi, sama hver ástæðan væri, þá myndi hver sem er geta níðst á hverjum sem er og það væri býsna slæmt.
Betur sjá augu en eyru.
Munurinn á Voyager og DS9 (6 álit)
í Sci-Fi fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Í stuttu máli er munurinn á Voy og ds9 sá að þegar maður sá síðasta þáttinn af Voyager, hugsaði maður: Hmm… kúl þáttur. En hins vegar var maður á nálum alla síðustu seríuna af DS9, reyndar hluta af 6. seríu líka. Ég fatta ekki hvernig menn geta haldið að Voyager sé besta trekið, meira að segja helsti talsmaður Voyager á Huga, Viktororri, viðurkenndi að honum hefði þá lokaþátturinn af TNG, All good things, betri en Endgame.
Betur sjá augu en eyru.
Helvítis mýflugur (3 álit)
í Heilsa fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Ég lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu í gær að vera að vinna við að slá gras með bensínorfi á svæði þar sem er mikið af mýflugum. Ég notaði heyrnahlífar, og af einhverri ástæðu setti ég þær yfir flugnanetið mitt, svo þegar ég hætti var ég eitthvað að klóra mér í eyranu og sé að puttinn á mér verður blóðugur, þá ríf ég af mér flugnanetið og sé að það er líka blóðugt og heill hellingur af flugum sem sitja í kringum þar sem heyrnahlífarnar voru, allar buslandi í blóði. Eru þá ekki djöfulsins...
WarCraft 3 pæling -Spoiler- (1 álit)
í Blizzard leikir fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég var bara að hugsa, fyrir þá sem hafa klárað Human Campaign, í hefð við reglur um Paladina, hefði ekki Arthas átt að vera löngu búinn að missa Paladin status, þ.e.a.s. áður en Campaignið var búið?
Betur sjá augu en eyru.
Hlutur sem ég hata við Neverwinter Nights (9 álit)
í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég er viss um að þetta er frábær leikur, og þess vegna fer það óendanlega í taugarnar á mér að ég get ekki spilað hann, af því að ég var einn af aulunum sem keyptu Voodoo5 rétt áður en 3dfx fór á hausinn. nú segja þeir bara, “Því miður styður Nwn ekki 3dfx skjákort, sorry, you´re screwed”. Nú get ég annað hvort ákveðið að spila ekki neverwinternights, eða fara út í búð og kaupa rándýrt geforce kort (eins og ég hefði átt að gera upphaflega) fyrir peninga sem ég á ekki.
Betur sjá augu en eyru.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok